Matthías Orri: Ömurlegt að Hlynur hafi ekki getað spilað Þór Símon Hafþórsson skrifar 25. mars 2018 21:52 Matthías Orri Sigurðarson. Vísir/Bára „
Ég var ekki í sambandi til að byrja með. Þetta er búið að vera löng sería og ég er bara orðin svolítið þreyttur. En það skiptir ekki máli núna. Ég steig upp í 4. leikhluta og skoraði 7 stig þegar liðið þurfti á mér að halda,“ sagði Matthías Orri, leikmaður ÍR, eftir nauman, 69-71, sigur á Stjörnunni þar sem sigurinn réðst á sigurkörfu á lokasekúndu leiksins. Lykilinn að sigrinum lá í fráköstunum en ÍR gjörsamlega pakkaði saman Stjörnunni í dag á þeim bænum en ÍR tók 59 fráköst gegn einungis 39 fráköstum frá Stjörnunni. Af þessum 59 fráköstum voru 20 sóknarfráköst en Stjarnan náði einungis fimm slíkum. „Þetta snérist við í kvöld. Þetta er búið að vera hinsegin alla seríuna. Hlynur auðvitað frábær að taka fráköst,“ sagði Matthías og var þá að tala um Hlyn Bæringsson, leikmann Stjörnunnar, sem gat ekki spilað í kvöld eftir þungt höfuðhögg sem hann fékk í síðasta leik liðanna. „Ég vil nefna það að það var ömurlegt að Hlynur Bæringsson hafi ekki getað spilað í kvöld. Það er ömurlegt að þurfa að vinna þegar hann er ekki inn á vellinum,“ sagði Matthías og hélt áfram. „Við vonum innilega að þetta sé ekki alvarlegt því þetta er frábær karakter. Landsliðsfyrirliði og leikmaður sem allir elska. Það dregur smá úr sigrinum að vinna án hans. “
Dominos-deild karla Mest lesið Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ Íslenski boltinn Ná samkomulagi um kaup á Alberti Fótbolti Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Íslenski boltinn John Andrews og Björn reknir Íslenski boltinn Staðfesta kaupin á Alberti Guðmunds Fótbolti Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Íslenski boltinn Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Handbolti Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Íslenski boltinn KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Íslenski boltinn Reka stórlið Lyon úr frönsku deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur ÍR-ingar næla sér í leikmann úr Íslandsmeistaraliði Stjörnunnar Hætta í miðju úrslitaeinvígi og enginn meistari krýndur Dóttirin talar íslensku: Í úrslitum NBA og meira tengd Íslandi en áður Þrumuleikur frá Jalen Williams og Thunder einum sigri frá titlinum Sjá meira