Helena: Allir hungraðir í þennan stóra Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 13. mars 2018 21:46 Helena skoraði 16 stig í kvöld Vísir/Andri Marinó
Helena Sverrisdóttir var að vonum glöð í bragði eftir sigur Hauka á Val í Domino’s deild kvenna, en Haukakonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með sigrinum í Valsheimilinu í kvöld. „Við vissum að þetta yrði baráttuleikur eins og hann var. Var kannski ekki fallegur körfubolti en það voru allir að leggja allt sitt í þetta og ég er ógeðslega ánægð með stelpurnar og liðið mitt í heildina,“ sagði Helena eftir leikinn. Það var hægt að taka undir með Helenu að leikurinn var ekki fallegur á að horfa. Það var mikið um baráttu og lítið skorað, lokatölur á Hlíðarenda urðu 67-71. „Ég er alveg drullu þreytt, þreyttari en vanalega. Það var mikið dæmt og þá varð þetta að ennþá meiri baráttu.“ Sjálfstraustið er hátt í Hafnarfirðinum þar sem liðið hefur unnið síðustu 14 leiki sína í deildinni í röð, sem þýðir að þær hafa unnið öll liðin í deildinni tvisvar í röð, fara með heimavallarrétt í úrslitakeppnina og verða að teljast líklegir Íslandsmeistarar. „Þetta var fyrsta markmiðið. Við eigum þrjá leiki í deildinni sem við þurfum að klára en við losnum við smá pressu með að vera búnar að tryggja okkur heimaréttinn í úrslitakeppninni. Núna vill maður vera með sjálfstraust og allt það, en það er ótrúlega mikið eftir af vetrinum.“ „Þetta er geggjað en það eru þrír leikir eftir og svo úrslitakeppnin.“ „Þetta lið er að vinna saman í fyrsta skipti, við urðum deildarmeistarar 2016 en þá vorum við með allt öðruvísi lið. Við erum með mjög ungar stelpur og ég fann að þær voru svolítið stressaðar í dag svo ég þurfti aðeins að reyna að stíga upp og taka pressuna af þeim. Við njótum þessa sigurs í nokkura daga og svo fáum við bikarinn afhentan einhvern tíman og það verður veisla.“ „Allir körfuboltamenn vita að úrslitakeppnin er allt önnur keppni og þá eru allir á núlli.“ Haukar eru nú deildarmeistarar í körfubolta bæði hjá körlum og konum, en karlaliðið tryggði sér sinn fyrsta deildarmeistaratitil í síðustu viku, svo lífið er ljúft í herbúðum Hauka. „Það eru allir mjög hungraðir enn þá. Geggjað að fá bikar, við elskum bikara í Hafnarfirði, en núna er þessi stóri sem bíður okkar og það eru allir hungraðir í hann,“ sagði Helena Sverrisdóttir.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Sjá meira