Neitar því að hafa nauðgað pilti ítrekað Samúel Karl Ólason skrifar 9. mars 2018 18:17 Héraðsdómur Reykjaness. vísir/gva
Maður á sextugsaldri neitaði því í dag að hafa nauðgað 18 ára pilti minnst sex sinnum. Ákæra gegn honum var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness en hann hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur piltum og eru brotin sögð ná frá byrjun árs 2015 til byrjunar þessa árs. Þetta kemur fram í frétt Ríkisútvarpsins en þar segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir ítrekuð brot gegn piltinum sem eiga að hafa átt sér stað yfir tveggja ára skeið. Hann var einnig ákærður fyrir að taka ítrekað ljósmyndir og myndbönd af piltinum á kynferðislegan og klámfengin hátt.Í gæsluvarðhaldsúrskurði Landsréttar í lok janúar kom fram að pilturinn hafði sagt lögreglu að maðurinn hefði dælt í sig lyfjum og brotið gegn sér. Þeir höfðu verið saman á gistiheimilum í nokkra daga og sagðist pilturinn lítið sem ekkert muna eftir því vegna lyfjaneyslu og hann hefði verið nánast meðvitundarlaus í viku. Hann sagði manninn hafa meðal annars keypt fyrir sig Sanex og marijúana. Þar að auki hafi hann gefið honum jakkaföt, bol og síma.Sjá einnig: Ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur piltumPilturinn sagðist hafa sent frá sér skilaboð eftir að maðurinn talaði við hann um að þeir hefðu stundað kynlíf. Hann man ekki eftir slíku og hafi verið rænulaus á meðan. Hann var fluttur á neyðarmóttöku þar sem í ljós kom að hann hafi verið undir áhrifum ýmissa fíkniefna og lyfja. Við leit í bíl mannsins fundust lyf, erlendur gjaldeyrir, kassi af nýjum síma, sleipiefni og kortaveski með ýmsum kortum. Þar á meðal korti merktu fyrri piltinum sem maðurinn var ákærður fyrir að brjóta gegn.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira