Nielsen missir af restinni af tímabilinu með ÍBV Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 28. febrúar 2018 18:57 Stephen Nielsen hefur spilað stórvel eftir áramót. vísir/vilhelm
Stephen Nielsen, markvörður ÍBV í Olís deildinni í handbolta, meiddist í sigri liðsins á FH á dögunum og verður frá út tímabilið. Arnar Pétursson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta við blaðamann Vísis í Eyjum fyrir leik liðsins við Selfoss sem nú stendur yfir. Sin rifnaði í tvíhöfða Stephen í leiknum gegn FH á mánudaginn, sem ÍBV sigraði 37-29. Þrátt fyrir það varði hann 16 bolta í leiknum og skoraði 2 mörk og því eru meiðsli hans mikið skarð fyrir skildi í liði ÍBV. Annar markmaður Eyjamanna, Aron Rafn Eðvarðsson, missteig sig snemma leiks gegn Selfossi og þurfti að fara af velli. Hann er þó kominn aftur í mark Eyjamanna, en virðist ekki vera í topp standi. Andri Ísak Sigfússon er þriðji markmaður Eyjamanna og er með Aroni Rafni á skýrslu í leiknum í kvöld. Þegar 20 mínútur eru liðnar af leiknum leiðir ÍBV með fimm mörkum, 13-8. Beina lýsingu frá Vestmannaeyjum má sjá hér. ÍBV er í öðru sæti Olís deildar karla og er af mörgum talið eiga möguleika á að fara alla leið í úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn ásamt því að liðið er í undanúrslitum Coca cola bikarsins og 8-liða úrslitum Áskorendabikars Evrópu.
Olís-deild karla Mest lesið Trump: HM í fótbolta 2026 ætti að hvetja Rússa til að enda Úkraínustríðið Fótbolti Gætu þurft að bíða í sautján ár eftir nýjum leikvangi Enski boltinn „Ekkert lið í þessari keppni hefur verið betra en við“ Fótbolti Fagnaði í bol með fullt af myndum af sjálfum sér Enski boltinn Hakimi um Luis Enrique: „Hann er snillingur“ Fótbolti Einar Árni: Ætlum að koma hingað aftur Körfubolti Lögreglan réðst inn á heilsugæslustöð til að komast yfir gögn um Maradona Fótbolti Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Handbolti Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Handbolti Arsenal tapaði í París og titlalaust tímabil staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Gísli og Ómar drógust gegn meisturunum Sjáðu sigurmark Gísla gegn Veszprém Janus Daði öflugur þegar Pick Szeged féll naumlega úr keppni Viggó og Andri Már frábærir í sigrum sinna liða Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita