Fjölskylda Toms Petty greinir frá banameini hans Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. janúar 2018 08:35 Tom Petty lést í byrjun október síðastliðnum, 66 ára að aldri. Vísir/afp
Tónlistarmaðurinn Tom Petty lést eftir að hafa innbyrt of stóran skammt af verkjalyfjum fyrir slysni. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fjölskyldu hans. Talið er að Petty hafi verið háður lyfseðilsskyldum verkjalyfjum í nokkurn tíma fyrir andlátið. Þá segir í yfirlýsingu fjölskyldunnar að Petty hafi „glímt við ýmsa alvarlega kvilla“, þar á meðal mjaðmarbrot, að því er fram kemur í frétt breska ríkisútvarpsins. „Daginn sem hann lést var honum tjáð að mjöðm hans væri brotin og við höldum að sársaukinn hafi einfaldlega verið óbærilegur og hafi valdið ofneyslu hans á lyfjum.“ Þá vonast fjölskylda Pettys til þess að andlát hans knýi fram frekari umræðu um ofneyslu á sterkum verkjalyfjum á borð við fentanýl, morfín og oxýkódon. Læknar Pettys höfðu meðal annars skrifað upp á fentanýl-plástra fyrir söngvarann vegna þrálatra verkja. Petty, sem var 66 ára gamall, lést í byrjun október siðastliðnum. Í fyrstu yfirlýsingu um andlátið, sem undirrituð var af umboðsmanni Pettys og fjölskyldu, var banamein hans sagt hjartaáfall. Ferill Petty spannaði nokkra áratugi, en hann rataði fyrst í sviðsljósið þegar hann kom fram með bandinu The Heartbreakers á sjöunda áratug síðustu aldar. Á meðal þekktustu laga hans eru Free Fallin', I Won't Back Down, Don't do me like that og Learning to fly.
Tengdar fréttir Þau kvöddu á árinu 2017 Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda. 18. desember 2017 14:30 Tom Petty látinn Tónlistarmaðurinn var 66 ára gamall. 3. október 2017 05:52 Tom Petty þungt haldinn Fannst meðvitundarlaus á heimili sínu. 2. október 2017 20:21 Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Sjá meira
Þau kvöddu á árinu 2017 Fjölmargir þekktir einstaklingar úti í heimi kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda. 18. desember 2017 14:30