Átján mánaða dómur fyrir nauðgun sem leiddi til sjálfsvigstilraunar Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 12. janúar 2018 23:15 Var manninum gefið að sök að hafa í herbergi í partýi haft önnur kynferðismök en samræði við skólasystur sína með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjaness felldi dóm þann 19. desember síðastliðinn yfir 19 ára gömlum manni. Hann var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir nauðgun sem var framin í febrúar 2015 þegar maðurinn var 17 ára. Var manninum gefið að sök að hafa í herbergi í partýi haft önnur kynferðismök en samræði við skólasystur sína með því að notfæra sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga og ölvunar. Í ákæru er maðurinn sagður hafa nuddað kynfæri brotaþola innanklæða, sett fingur ítrekað inn í leggöng hennar, káfað á brjóstum hennar utanklæða, sleikt kinn hennar og háls, sett fingur ítrekað upp í munn hennar, látið hönd hennar á getnaðarlim sinn utanklæða og fróað sér við hlið hennar.Fraus og þorði ekki að gera neitt Maðurinn neitaði sök en þau voru bæði gestkomandi í partýi umrætt kvöld. Hafði brotaþoli fengið leyfi hjá húsráðanda til að gista. Fyrir dómi sagði hún að þetta hefði verið í fyrsta skipti sem hún hefði orðið verulega ölvuð. Hinn ákærði sagði sjálfur að stúlkan hafi verið „dauðadrukkin.“ Í skýrslu sinni fyrir dómi lýsti hinn sakfelldi atvikum svo að hann og brotaþoli hefðu rætt saman í herbergi í partýinu. „Var á ákærða að skilja að þegar það gerðist hefðu þau setið í rúmi í herberginu. Þau hefðu í framhaldinu lagst í rúmið og ákærði kysst brotaþola á munninn og strokið brjóst hennar og kynfæri utan klæða, allt í einni samfellu. Brotaþoli hefði engin viðbrögð sýnt og ákærði því ekkert meira aðhafst. Var á ákærða að skilja að er þarna var komið sögu hefði hann áttað sig á því að brotaþoli væri líklegast sofnuð ölvunarsvefni. Staðfesti ákærði að á þeim tímapunkti hefði hann sagt: „Vá hvað þú ert dauð.“ Hann hefði síðan farið að sofa,“ segir í dóminum. Stúlkan sagðist hafa farið inn í fyrrnefnt herbergi eftir að hafa skroppið frá með hinum sakfellda til að skutla öðrum partýgest heim. Þar hefði hún sofnað en síðar vaknað við að ákærði var að káfa á hana. Það hafi tekið hana dálitla stund að átta sig á því hvað væri að gerast en hún síðan frosið og þorði ekki að gera neitt. Skömmu eftir að hún vaknaði hefði hann sagt nafn hennar tvisvar og þegar hún svaraði ekki hafi hann sagt „Vá hvað þú ert dauð.“ „Háttsemi ákærða lýsti brotaþoli annars svo að hann hefði troðið hendinni ofan í buxur hennar og káfað á og nuddað kynfæri hennar. Hann hefði einnig ítrekað sett fingur til skiptis upp í leggöng hennar og munn. Ákærði hefði jafnframt sleikt kinn brotaþola og niður á hálsinn og káfað á brjóstum hennar utan klæða. Þá hefði hann í stutta stund sett hönd brotaþola á reistan lim sinn og hreyft höndina. Enn fremur taldi brotaþoli að ákærði hefði sjálfur strokið lim sinn, fróað sér, sem brotaþoli hefði merkt á því sem hún heyrði og því að rúmið fór að hristast aðeins. Brotaþoli sagðist þá hafa hreyft sig aðeins og látið líta út fyrir að hún væri að renna út úr rúminu. Hefði ákærði þá látið af háttsemi sinni,“ segir í dómnum.Játaði brot í SMS skilaboðum Við mat á trúverðugleika framburðar var tekið tillit til SMS skilaboða sem hinn sakfelldi sendi stúlkunni þann 11. febrúar 2015 í kjölfar þess að sameiginleg vinkona veittist að honum í skólanum. Í skilaboðunum stóð meðal annars: „Ég trúi varla hvað ég gerði þér. Ég trúði að að þér finndist þetta „Gott“ en mér hefur aldrei verið jafn rangt. Þetta er allt mér að kenna. Ég átti aldrei að detta þetta í hug. Ég hef aldrei átt að láta þér líða svona hræðilega. Og svo keyrði ég þig heim. Þú áttir þetta aldrei skilið og ég get aldrei litið í spegil á mig með sömu augum.“ Þá leitaði ákærði á lögreglustöð að eigin frumkvæði eftir að brotið átti sér stað. Í skýrslu lögreglu sem rituð var þá segir að hann hafi viljað gangast við kynferðisbroti. Meðal gagna í málinu eru vottorð geðlæknis um að andlegt heilsufar stúlkunnar hafi versnað mjög á árinu 2015 í kjölfar brotsins. Í febrúar 2015 hafi hún verið lögð inn á geðdeild vegna inntöku of stórs lyfjaskammts og þá hafi hún aftur reynt að taka eigið líf í febrúar 2016. Maðurinn var sem fyrr segir dæmdur í 18 mánaða fangelsi og mun hann þurfa að greiða stúlkunni 1,3 milljónir króna í bætur. Dóm Héraðsdóms Reykjaness má lesa í heild sinni hér.
Dómsmál Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Sjá meira