Fjölskylda mikilsvirts viðskiptamanns fórst í flugslysi Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. janúar 2018 16:14 Frá vettvangi slyssins við Hawkesbury-ána norðan við Sydney. Vísir/EPA
Fimm manna fjölskylda Richards Cousins, framkvæmdastjóra eins stærsta veitingaþjónustufyrirtækis í heimi, fórst í flugslysi í grennd við áströlsku borgina Sydney á gamlársdag. Cousins var 58 ára gamall. Í flugslysinu fórust einnig unnusta hans, ritstjórinn Emma Bowden, Heather, 11 ára gömul dóttir hennar, og tveir synir Cousins, Edward og William. Þeir voru 23 og 25 ára gamlir. Þá fórst flugmaður vélarinnar, hinn ástralski Gareth Morgan, einnig í slysinu. Fjölskyldan, sem var búsett í suðvesturhluta Lundúna, var á leið til Sydney eftir málsverð á veitingastað utan við borgina. Tildrög slyssins eru enn óljós en flugvélin brotlenti í Hawkesbury-ánni um 50 kílómetra norðan við Sydney. Cousins tók við stöðu framkvæmdastjóra breska fyrirtækisins Compass Group, sem sér meðal annars um veitingar fyrir viðburði og fyrirtæki, árið 2006 og hugðist fara á eftirlaun í september. Hann naut mikilla vinsælda í starfi og hefur mikil sorg gripið um sig meðal samstarfsfólks hans, að því er fram kemur í frétt BBC. Emma Bowden, unnusta hans, átti farsælan feril hjá tímaritinu OK! Magazine að baki. William, eldri sonur Cousins, var fjölmiðlafulltrúi hreyfingarinnar Open Britain sem berst gegn snarpri útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þá var Edward, sá yngri, nýútskrifaður úr hinum breska St Andrews-háskóla.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira