Neyðarástand á Ítalíu eftir mannskæða sprengingu í Austurríki Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. desember 2017 13:59 Sprengingin var öflug. Vísir/Getty
Yfirvöld á Ítalíu hafa lýst yfir neyðarástandi vegna skorts á gasi eftir að mannskæð sprenging varð í gasveri í Austurríki fyrr í dag. Gasverið er mikilvæg dreifingarstöð fyrir gas í Evrópu. Að minnsta kosti einn lést í sprengingunni og átján eru særðir. Sprengingin varð um klukkan 8.45 að staðartíma en töluverður eldur braust út vegna sprengingarinnar. Slökkviliði hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins. Lögregla segir að lítið sé vitað um ástæður sprengingarinnar, utan þess að líklega hafi hún verið af tæknilegum völdum, frekar en af mannavöldum. Gasverið tekur á móti gasi víðsvegar frá Evrópu og dreifir því áfram. Fyrirtækið sem rekur gasverið segir að starfsemi þess muni raskast um ófyrirséðan tíma. Gasverð hækkaði víða í Evrópu eftir að fréttir af sprengingunni brutust út, þar á meðal um 97 prósent í Ítalíu. Iðnaðarráðherra Ítalíu segir að ríkið standi nú frammi fyrir alvarlegum orkuvanda vegna sprengingarinnar á meðan unnið er að því að tryggja framboð af gasi eftir öðrum leiðum.
Mest lesið Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Innlent „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Innlent Senda norðlenskt rusl úr landi Innlent Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent „Fólk er ekki heimskt“ Innlent Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Erlent Fleiri fréttir Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Sjá meira