Tíundi sigur Cleveland í röð 1. desember 2017 07:30 LeBron James og Dwayne Wade. Vísir/Getty
Cleveland vann í nótt sinn tíunda sigur í röð í NBA-deildinni er liðið skellti Atlanta á heimavelli, 121-114. Munaði þar mestu um skotnýtingu liðsins utan þriggja stiga línunnar en Cleveland setti niður átján þrista í leiknum. Kevin Love var með 25 stig og sextán fráköst en LeBron James kom næstur með 24 stig og tólf stoðsendingar. Atlanta náði þó áhlaupi í fjórða leikhluta og minnkaði muninn í eitt stig, 113-112, en James setti niður þriggja stiga skot þegar um tvær mínútur voru eftir og Cleveland náði að klára leikinn. Hjá Atlanta var Þjóðverjinn Dennis Schröder stigahæstur með 27 stig en Ersan Ilyasova skoraði 22. Boston vann Philadelphia, 108-97, þar sem Kyrie Irving fór sem fyrr á kostum en hann skoraði 36 stig í leiknum í nótt. Leikurinn var þó jafn framan af en Boston náði að síga fram úr undir lokin. Al Horford skoraði 21 stig en hann var með átta fráköst og fimm stoðsenidngar þar að auki. Dario Saric skoraði átján stig fyrir Philadelphia og var með tíu fráköst. Milwaukee vann Portland, 103-91. Giannis Antetokounmpo skoraði 20 stig, tók níu fráköst, gaf fimm stoðsendingar og varði þrjú skot fyrir sigurliðið. Úrslit næturinnar: Atlanta - Cleveland 114-121 Boston - Philadelphia 108-97 Denver - Chicago 111-110 Portland - Milwaukee 91-103 LA Clippers - Utah 107-126
NBA Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti Yfirlýsing Fylkis: Biðjast afsökunar og lofa að taka hart á málinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira