Sagði að nauðga ætti konum í rifnum gallabuxum Kristín Ólafsdóttir skrifar 2. desember 2017 17:24 Nabih al-Wahsh, lögfræðingur og þekktur íhaldsmaður í heimalandi sínu, sést hér fyrir utan réttarsal í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, árið 2001. Á þeim tíma stóð hann í málaferlum við egypska femínistann og rithöfundinn Nawal al-Saadawi en hann sakaði hana um að hafa talað á niðrandi hátt um íslam. Vísir/AFP
Egypskur lögfræðingur hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að segja að konur sem klæðist rifnum gallabuxum eigi að vera nauðgað í refsingarskyni. BBC greinir frá. Nabih al-Wahsh, lögfræðingur og þekktur íhaldsmaður í heimalandi sínu, var auk þess dæmdur til að greiða sekt að upphæð 20 þúsund egypskra punda eða um 116 þúsund íslenskra króna. Wahsh tjáði þessa glæpsamlegu skoðun sína í sjónvarpsþætti í október síðastliðnum. Þangað var hann fenginn til að ræða lagasetningartillögu um vændi. „Ertu ánægður þegar þú sérð stúlku ganga eftir götunni með hálfan rassinn til sýnis?“ sagði Wahsh í þættinum „Mér finnst að þegar stúlka gengur um á þennan hátt, þá sé það skylda þjóðrækinna einstaklinga að áreita hana kynferðislega og skylda þjóðarinnar að nauðga henni,“ bætti hann við. Þá sagði hann að með því að klæðast efnislitlum fötum væru konur að bjóða karlmönnum að nauðga þeim. Ummæli Wahsh voru harðlega gagnrýnd í Egyptalandi og var hann ákærður eftir umfangsmikil mótmæli. Egypsk landsnefnd um kvenréttindi fordæmdi enn fremur ummælin, sagði þau „svívirðileg“ og brjóta í bága við egypsku stjórnarskrána. Wahsh er mjög umdeildur í heimalandi sínu. Hann hefur opinberlega lýst yfir andúð sinni á gyðingum og sagt Helförina „ímyndun“. Þá reifst hann við klerk í sjónvarpssal á síðasta ári eftir að klerkurinn sagði konur ekki endilega þurfa að ganga með slæðu.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira