Ekki hryðjuverk heldur fjárkúgun Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. desember 2017 18:50 Jólamarkaður í miðborg þýsku borgarinnar Potsdam var rýmdur síðdegis á föstudag. Vísir/AFP
Lögregla segir sprengju, sem fannst á jólamarkaði í þýsku borginni Potsdam á föstudag, ekki tengjast hryðjuverkastarfsemi. Þeir sem báru ábyrgð á sprengjunni hafi ætlað að kúga fé út úr þýsku hraðsendingarþjónustunni DHL. BBC greinir frá. Jólamarkaður í miðborg þýsku borgarinnar Potsdam var rýmdur síðdegis á föstudag eftir að yfirvöld fundu grunsamlegan böggul sem lögreglan óttaðist að væri heimagerð sprengja. Pakkinn grunsamlegi hafði verið sendur í apótek sem er nálægt markaðnum. Starfsmaður í apótekinu tilkynnti málið til lögreglu og var böggullinn gegnumlýstur í kjölfarið. Við skoðunina kom í ljós að hann innihélt nagla í þúsundatali, víra og rafhlöður. Við rannsókn á bögglinum fannst enn fremur QR-kóði sem lögregla skannaði. Við það kom í ljós að þeir sem höfðu sent sprengjuna í apótekið hugðust kúga milljónir evra út úr þýsku hraðsendingarþjónustunni DHL, sem sá um sendinguna. Yrði greiðslan ekki framkvæmd sögðust þeir ætla að setja sprengjuna af stað. Yfirvöld segja því fullljóst að pakkinn hafi ekki verið ætlaður jólamarkaðnum og að ekki hafi verið um hryðjuverk að ræða. Mikill viðbúnaður er í Þýskalandi vegna ótta um hryðjuverkaárásir. Í desember á síðasta ári létust tólf manns í hryðjuverkaárás á jólamarkaði í Berlín þegar maður ók vörubíl inn í þvögu fólks á markaðnum. ISIS hryðjuverkasamtökin sem kenna sig við íslamska ríkið lýstu yfir ábyrgð á árásinni.
Tengdar fréttir Jólamarkaður í Potsdam rýmdur vegna sprengjuótta Lögreglan í Potsdam lokaði jólamarkaði og þónokkrum verslunum í nágrenni við hann vegna grunsamlegs pakka sem fannst nærri markaðnum. Rannsókn á málinu stendur enn yfir. 2. desember 2017 11:56 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira
Jólamarkaður í Potsdam rýmdur vegna sprengjuótta Lögreglan í Potsdam lokaði jólamarkaði og þónokkrum verslunum í nágrenni við hann vegna grunsamlegs pakka sem fannst nærri markaðnum. Rannsókn á málinu stendur enn yfir. 2. desember 2017 11:56