Dagur Sig ætlar að byrja árið á því að spila við íslenska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2017 08:00 Dagur Sigurðsson. Vísir/Getty
Íslenska handboltalandsliðið mun spila vináttulandsleik við Japan á lokaspretti undirbúnings síns fyrir Evrópumótið í Króatíu í janúar. Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans, sagði frá þessu í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport í gærkvöldi að hann mun mæta íslenska landsliðinu 3. janúar. Japanska landsliðið gæti spilað annan leik á Íslandi strax daginn eftir en sá yrði á móti liði skipað leikmönnum úr Afrekshópi HSÍ. „Það er bara næsta verkefni og ég er að fara núna út til að undirbúa mína menn. Það stefnir allt í það að við komum til með að spila við Ísland í byrjun janúar. Þetta yrði þá síðasti leikurinn hjá Íslandi fyrir Evrópumótið,“ sagði Dagur Sigurðsson í Seinni bylgjunni í gær. Íslenska landsliðið spilar fyrsta leikinn sinn á Evrópumótið 12. janúar en liðið mætir þá öðrum íslenskum þjálfara. Fyrsti leikur liðsins á EM er nefnilega á móti sænska landsliðinu. Dagur Sigurðsson tók við japanska landsliðinu fyrr á þessu ári en honum er ætlað að undirbúa liðið fyrir Ólympíuleikana í Tókýó árið 2020. Dagur Sigurðsson hefur mætt íslenska landsliðinu sem bæði þjálfari austurríska landsliðsins og sem þjálfari þýska landsliðsins. Hann verður að sjálfsögðu fyrsti íslenski þjálfarinn sem stýrir þremur mismundandi landsliðum á móti Íslandi.
EM 2018 í handbolta Handbolti Mest lesið Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Sport Skildu eftir miða í búningsklefa eftir leik Fótbolti Haaland og félagar fögnuðu sigri með víkingaróðri úti á velli Fótbolti Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Íslenski boltinn „Þetta kom gríðarlega á óvart“ Fótbolti „Ekki oft sem við erum gripnir í bólinu“ Fótbolti Mbappé með tvö og Frakkar áfram eftir leik sem seinkaði um tvo tíma Fótbolti Manchester United fær landsvæði fyrir nýja leikvanginn Fótbolti UFC-goðsögnin handtekin fullur á almannafæri Sport Segist hafa sett bölvun á Harry Kane fyrir kvöldið Fótbolti Fleiri fréttir Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Sjá meira