Heimir hættur með FH-liðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. október 2017 15:25 Heimir Guðjónsson. Vísir/Ernir
Heimir Guðjónsson er hættur sem þjálfari FH í Pepsi-deild karla en hann hefur þjálfað liðið frá 2008 og gert FH fimm sinnum að Íslandsmeisturum. FH-ingar birta í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem sagt er frá þessum tíðindum en Heimir hefur verið í FH sem leikmaður, aðstoðarþjálfari eða þjálfari frá aldarmótum. Heimir Guðjónsson kom í FH fyrir 2000-tímabilið og hjálpaði liðinu upp í úrvalsdeild á fyrsta tímabili. Hann lék síðan með FH í sex tímabil og var fyrirliði liðsins sem varð Íslandsmeistari 2004 og 2005. Heimir var síðan aðstoðarþjálfari Ólafs Jóhannessonar í tvö tímabil áður en hann tók við liðinu. Undir stjórn Heimis varð FH-liðið Íslandsmeistari tvö fyrstu tímabilin (2008 og 2009) og vann síðan bikarinn á því þriðja (2010). FH vann einnig Íslandsmeistaratitilinn 2012 og svo árin 2015 og 2016. FH varð í 1. eða 2. sæti fyrstu níu tímabilin sem Heimir stýrði liðinu en endaði í 3. sæti í Pepsi-deildinni í sumar auk þess að tapa á móti ÍBV í bikarúrslitaleiknum.Fréttatilkynning FH-inga: „Knattspyrnudeild FH og Heimir Guðjónsson þjálfari FH hafa komist að samkomulagi um að Heimir láti nú af störfum hjá félaginu. Heimir hefur verið einn af máttarstólpunum í allri velgengi FH á síðustu árum og vill félagið fá að þakka honum fyrir hans störf síðustu 17 árin og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Íslenski boltinn Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Enski boltinn Leikmaður ÍA búinn á því í upphitun Körfubolti Dramatík í uppbótartíma Enski boltinn Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Íslenski boltinn Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool Enski boltinn Sanngjarn heimasigur Enski boltinn „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ Sjá meira