Maður sleginn í andlitið með flösku Kjartan Kjartansson skrifar 8. október 2017 11:16 Árásarmaðurinn var horfinn á braut þegar lögregla kom á staðinn í miðborginni. Vísir/Eyþór
Árásarmaður sem sló annan mann með flösku í andlitið í miðborg Reykjavíkur í nótt lét sig hverfa af vettvangi áður en lögreglu bar að garði. Fórnarlamb árásarinnar hlaut skurð á höfði. Í dagbók lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu kemur fram að óskað hafi verið eftir aðstoð hennar og sjúkraliðs vegna árásarinnar kl. 5:30 í morgun. Fórnarlambið hafði meðal annars verið lamið í andlitið með flösku og var flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til skoðunar og aðhlynningar. Nokkuð var einnig um ölvunarakstur í borginni í nótt og morgun og þá voru gerðar tilraunir til innbrota í bílum á tveimur stöðum. Um klukkan átta í morgun var maður handtekinn vegna þjófnaðar úr bifreið í Breiðholti. Hann hafði þá gengið milli bifreiða til þess að kanna hvort þær væru ólæstar í félagi við tvo aðra menn. Maðurinn fór inn í bifreið sem var ólæst og tók þaðan nokkra muni. Var hann handtekinn skammt frá vettvangi og var hann færður á lögreglustöð til skýrslutöku. Í Árbæ var tilkynnt um að farið hafi verið í leyfisleysi inn í bifreið fyrir utan fjölbýlishús og úr honum tekin einhver verðmæti á sjöunda tímanum í morgun.
Mest lesið Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Innlent Fagnað á götum Kabúl Erlent Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Erlent „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Erlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Mundaði stólinn og lamdi gesti Innlent Fleiri fréttir Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Allt hnífjafnt í nýjum þjóðarpúlsi og reynt aftur við Lagarfljót Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Leituðu manns sem átti að vera vopnaður rafbyssu Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Sjá meira