„Klukkan tifar“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 22:20 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. vísir/anton „Þeir geta ekki búið til forsendur kjarasamninga eftir á eins og þeir vilja hafa þær,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR. Stjórn félagsins hafi metið stöðuna svo að uppsögn kjarasamninga verði óhjákvæmileg náist ekki fram breytingar á næstu vikum.
Halla vísar því til föðurhúsanna að launaþróun keyri verðbólguna upp og segir fyrirtæki sem hafi verðmótandi áhrif ekki hafa staðið við loforð um að halda aftur af verðhækkunum heldur þess í stað skilað glæsilegri afkomu og greitt út háa kaupauka. Ríki og sveitarfélög hafi sömuleiðis brugðist loforðum um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum, ekki síst gagnvart barnafjölskyldum og viðkvæmum hópum. Laun hækka minna en verðlag Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins, hefur bent á að kaupmáttur hafi aukist meira en vænst var og varað við kólnandi hagkerfi og auknu atvinnuleysi. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur tekið í svipaðan streng og sagt forsendur kjarasamninga ekki brostnar, þrátt fyrir að verðbólguviðmið standist ekki, enda hafi laun hækkað meira en samningar gerðu ráð fyrir. Halla er ekki sammála þeirri greiningu. „Það er gaman að búa í þeirra heimi,“ segir hún. „Forsendur kjarasamninga voru þær að verðbólga gengi niður og síðan stóðu auðvitað vonir til þess að stýrivextir myndu gera það líka. Núna hafa kjarasamningsbundin laun hækkað minna en verðlag. Það þýðir að fólk sem hefur fengið kjarasamningsbundnar hækkanir er að greiða hærra verð en það er að fá launahækkanir.“ Hún vísar jafnframt til vaxtaþróunar frá því samið var í mars 2024. Þá hafi mörg heimili verið með óverðtryggð lán á föstum, tiltölulega hóflegum vöxtum, en misst þá veturinn 2024 til 2025 og setið uppi með allt að 9 prósent vexti, þannig að vaxtagreiðslur hafi jafnvel tvöfaldast hjá sumum. Viðkvæmar vikur framundan Spurð um það hvort ný kjararimma gæti ekki ýtt undir verðbólgu og hærri vexti segir Halla að laun séu ekki helsti drifkraftur verðbólgunnar. „Við getum ekkert bara setið hjá og sagt við ætlum bara að fella okkur við launahækkanir, lágar launahækkanir, jafnvel undir verðbólgu, á meðan bara aðrir gera það sem þeim sýnist,“ segir hún. Klukkan tifi. Vísitölumæling verði birt 27. ágúst og aðildarfélög hafi svo frest til 8. október til að ákveða hvort samningum verði sagt upp. „Þetta eru mjög mikilvægar vikur núna,“ segir Halla. „Ég held að það sé alveg augljóst fyrir hvern einasta VR-félaga og hvern einasta Íslending sem fer út í búð og þarf að greiða af lánunum sínum um hver mánaðamót og fær síðan launaseðil, að þetta getur ekki gengið svona. Hérna er bara vitlaust gefið,“ segir Halla Gunnarsdóttir formaður VR.
Kjaraviðræður 2023-25 Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira