Færeyingar fögnuðu nýju stigameti vel og innilega Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. september 2017 11:30 Leikmenn færeyska liðsins fagna marki. Vísir/Getty
Færeyingar eru rétt eins og Íslendingar hæstánægðir með knattspyrnulandslið sitt en færeyska liðið hefur sett nýtt stigamet í sögu sinni. Liðið er komið með átta stig í undankeppni HM 2018 en það vann Andorra á heimavelli á sunnudag, 1-0. Færeyingar byrjuðu undankeppnina á glæsilegan máta, með því að ná markalausu jafntefli gegn Ungverjalandi sem var þá nýbúið að keppa á EM í Frakklandi. Síðan kom frábær 2-0 sigur á Lettlandi á útivelli. Síðan komu fimm leikir í röð án sigurs - fjögur töp og svekkjandi markalaust jafntefli við Andorra á útivelli. En þeir bættu fyrir það með sigrinum á sunnudag og fá Færeyingar tækifæri til að bæta stigametið enn frekar þegar þeir taka á móti Lettum í Þórshöfn þann 7. október. Rúmlega 50 þúsund manns búa í Færeyjum og en rétt tæp tíu prósent íbúanna voru á vellinum á sunnudag og urðu vitni að þessum sögulega sigri. Þjálfari liðsins er hinn danski Lars Olsen og hann sagði í samtali við TV2 í Danmörku að það hafi verið mikil gleði eftir leikinn. „Fögnuðurinn var gríðarlegur eftir leik. Það tók leikmenn 5-10 mínútu að komast inn í klefa og þá byrjaði fögnuðurinn aftur. Og ég held að þau eigi þetta skilið - sérstaklega leikmennirnir,“ sagði Olsen. „Þeir sem spila með færeyska liðinu eru að leggja hart að sér á hverjum degi og leggja mikið á sig í hverjum einasta leik. Það er engin stjarna í liðinu - liðið sjálft er stjarnan. Þeir eiga þetta skilið.“
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Pílukastarinn biðst afsökunar á að hafa fallið á lyfjaprófinu og öllum lygunum Sport Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Íslenski boltinn Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Enski boltinn Ótrúleg tíðindi á HM í pílukasti: „Mikið sjokk“ Sport Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Fótbolti Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Enski boltinn Tvær títanplötur settar í Jake Paul eftir kjálkabrotið Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Fleiri fréttir Hleður Kjartan lofi eftir frábæra frumraun með Aberdeen Óttast að Isak hafi fótbrotnað Túfa gerir þriggja ára samning í Svíþjóð Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Albert skoraði í fyrsta sigri Fiorentina Bæjarar aftur á sigurbraut Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Barcelona með fjögurra stiga forskot inn í nýtt ár Alvöru innkoma: Kjartan með stoðsendingu gegn Celtic í sínum fyrsta leik Sandra María hetjan og með þeim markahæstu í Þýskalandi Katla skoraði annan leikinn í röð Tómas Bent og félagar unnu Rangers og náðu átta stiga forskoti á toppnum Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Hildur áfram í bikarnum og Amanda enn á toppnum Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Haaland gaf barnabarni Hareide gjöf Sjáðu mörkin úr enska: Sviptingar, sænskt þema og svakalegar tæklingar Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Orri Steinn kominn með nýjan þjálfara Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Real Madrid - Sevilla | Tekst að róa ástandið fyrir jól? Willum spilaði sinn fyrsta leik í tæpa fjóra mánuði Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Sjá meira