Gat dómarinn dæmt jöfnunarmark Stjörnunnar mögulega fimm sinnum af? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. maí 2017 11:30
Stjörnumenn tryggðu sér eitt stig í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla á mánudaginn með því að skora jöfnunarmark sjö mínútum fyrir leikslok. Nýliðar Grindavíkur komust tvisvar yfir í leiknum og voru búnir að vera yfir nær allan seinni hálfleikinn þegar Daníel Laxdal jafnaði fyrir Garðabæjarliðið. Lokatölurnar í leiknum urðu því 2-2 en það var samt lítill sigur fyrir nýliða Grindavíkur að ná í stig á móti sterku Stjörnuliði. Grindvíkingar voru mjög ósáttir með að markið hafi fengið að standa og það er vissulega hægt að nefna nokkrar ástæður fyrir því af hverju dómarinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson gat dæmt markið af. Þegar markið er skoðað betur þá er mögulega hægt að finna fimm ástæður fyrir því af hverju markið var ekki löglegt. Nú er spurning hvort menn sé sammála að um brot eða rangstöðu hafi verið að ræða í þessum fimm atriðum. Hver og einn getur skoðað upptökuna af markinu og dæmt sjálfur. Ástæðurnar fimm eru hér fyrir neðan en myndbandið má síðan sjá í spilaranum hér fyrir ofan.Hér eru fimm mögulegar ástæður fyrir því að dæma jöfnunarmarkið af: 1) Hólmbert Friðjónsson brýtur á Grindvíkingnum Gunnari Þorsteinssyni 2) Baldur Sigurðsson brýtur á Grindvíkingnum Brynjari Ásgeiri Guðmundssyni 3) Baldur Sigurðsson er rangstæður þegar Daníel Laxdal skallar boltann áfram [Baldur hindrar svo markvörðinn] 4) Eyjólfur Héðinsson er rangstæður þegar Daníel Laxdal skallar boltann áfram [Eyjólfar skallar svo í slá] 5) Baldur Sigurðsson brýtur á Kristijan Jajalo, markverði Grindavíkur
Pepsi Max-deild karla Mest lesið FH - Þór 2-1 | Þórsarar tryggja sig naumlega áfram Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Íslenski boltinn Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Arsenal - Everton | Þurfa sigur til að halda í við toppliðið Enski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Leik lokið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti markametið Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Víkingur - Fram | Lokaleikur tímabilsins Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjá meira