Cleveland með magnaðan árangur síðan James kom tilbaka Dagur Sveinn Dagbjartsson skrifar 7. maí 2017 12:30 DeMar DeRozan og LeBron James eigast hér við í leik liðanna á föstudaginn. vísir/getty
Það er óhætt að segja að lið Cleveland Cavaliers hafi verið að spila eins og lið sem valdið hefur að undanförnu. Cleveland hefur nú spilað sjö leiki í úrslitakeppni NBA og unnið þá alla. Liðið sópaði Indiana Pacers út úr úrslitakeppninni, 4-0, og er á góðri leik með að gera það sama gegn Toronto Raptors. Cleveland og Toronto mætast í fjórða leik liðanna í kvöld og með sigri getur Cleveland bókað sæti sitt í úrslitum Austurdeildarinnar. En þrátt fyrir fjóra sigra á Indiana í fyrstu umferð úrslitakeppninnar, þá voru það allt saman jafnir leikir. Cleveland vann einvígið einungis með 16 stiga mun samtals úr öllum leikjunum. LeBron James skoraði 35 stig í síðasta leik Cleveland og Toronto og Cleveland hefur nú unnið 31 leik í úrslitakeppni og aðeins tapað 4 síðan James kom aftur til Cleveland, fyrir tímabilið 2014-2015. Toronto lék síðasta leik án Kyle Lowry, sem glímir við ökklameiðsli. Og ekki hjálpaði það Toronto mikið að vera með afleita nýtingu í skotum sínum. Liðið hitti til að mynda aðeins úr tveimur af átján þriggja stiga skotum sínum. Það þarf því eitthvað mikið að gerast í kvöld ef Toronto ætlar að ná að knýja fram sigur. Leikur Toronto og Cleveland verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og hefst útsending kl. 19:30.
NBA Mest lesið Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed Golf Rekinn eftir einn leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira