Leiðtogi Norður-Kóreu elskar ítalska boltann Henry Birgir Gunnarsson skrifar 26. apríl 2017 22:45 Kim og Rodman horfa saman á körfubolta í Norður-Kóreu. Ógleymanlegt. vísir/afp
Hinn umdeildi leiðtogi Norður-Kóreu, Kim Jong-Un, kemur reglulega á óvart og nú hefur komið í ljós að hann fylgist ítarlega með ítalska boltanum. Svo segir ítalski þingmaðurinn Antonio Razzi en hann er nýkominn úr heimsókn frá Norður-Kóreu þar sem hann hitti Kim. Í apríl síðastliðnum náði hinn 18 ára gamli Kwang-Song Han þeim árangri að verða fyrsti Norður-Kóreumaðurinn til þess að skora í ítalska boltanum. Hann skoraði þá fyrir Cagliari í leik gegn Palermo. Kim fylgist ekki bara með framgangi síns manns í deildinni heldur úrvalsdeildinni í heild sinni. Missir varla af leik og ekki síst þegar Juventus er að spila. „Hann veit allt um ítölsku úrvalsdeildina og NBA,“ sagði Razzi en það gleymist seint er Kim tók á móti Dennis Rodman og fleiri gömlum NBA-kempum. Juventus er aðalliðið í Norður-Kóreu og myndu líklega færri komast að en vilja ef liðið myndi mæta til Pyongyang og spila. „Pyongyang-leikvangurinn er risastór en samt yrði ekki eitt autt sæti þar á leik með Juventus,“ sagði Razzi sem ætlar að hitta Norður-Kóreumanninn í ítalska boltanum og færa honum kveðjur frá Kim.
Fótbolti Mest lesið Með 40 blöðrur á fótunum og sefur ekki fyrir verkjum: „Brýtur mann á allan hátt“ Sport „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Íslenski boltinn Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Handbolti Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Fótbolti Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Fótbolti Sakaðir um ólöglegar upptökur Enski boltinn Rasískur bolur fyrir kappakstur Trump tekinn úr umferð Sport Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Körfubolti Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Handbolti Yfirlýsing ÍBV: Hafdís beðin afsökunar og maðurinn í bann Handbolti Fleiri fréttir Í straff vegna skilaboða til ólögráða stúlku „Þá verðum við á góðum stað“ „Mun persónulega færa þeim pylsu og kók“ „Þú varst ekki frekari en ég, það er aldrei að fara að gerast“ Sakaðir um ólöglegar upptökur Þriðjungur jarðarbúa að missa af HM? Neyðast til að styðja liðið sem þeir hata „Trúðurinn“ fyrir norðan: „Þessi maður á bara að skammast sín“ Carrick segist bíða rólegur Eiginkona þjálfarans segir Burnley bera ábyrgð í andlátinu Grét í sturtunni og vissi að hann þyrfti að hætta aðeins þrítugur Glasner gæti kvatt Palace með titli en Rayo Vallecano stendur í veginum Villa valtaði yfir Forest og mætir Freiburg í úrslitaleiknum Valverde segist bara hafa rekið höfuðið í borð Shakira gefur út nýtt HM lag Aston Villa - Nott. Forest | Létt veganesti gestanna Valverde á spítala eftir önnur slagsmál við Tchouameni „Þetta er flókin staða“ Yfir þrjátíu milljónir vilja Mbappé í burtu Markið frá Kane gæti reynst óhemju dýrmætt fyrir allt annað lið Rússinn sem hrifsaði til sín sæti Donnarumma Tvísýnt með þátttöku Kristals í úrslitaleiknum: „Búinn að vera stórkostlegur“ Liverpool hættir við verðhækkanir Sjáðu Andreu skora tvisvar beint úr horni og systurnar svara Dómarnir sem gerðu Bæjara brjálaða: „Maður skilur þá mjög vel“ „Fannst þeir allt eins geta sleppt því að hafa mig“ Sjáðu Dembélé skjóta PSG áfram í úrslitaleikinn Slagsmál á æfingasvæði Real Madrid „Ekki hægt að réttlæta þessa ákvörðun“ Uppgjörið: Víkingur-Breiðablik 2-4 | Rigndi mörkum í Víkinni Sjá meira