Rúnar Alex og félagar halda áfram að bruna upp töfluna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2017 15:24 Rúnar Alex Rúnarsson við öllu viðbúinn í marki Nordsjælland. Vísir/Getty
Rúnar Alex Rúnarsson var í marki Nordsjælland þegar liðið vann 4-1 útisigur á SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta dag. Nordsjælland hefur þar með unnið fimm af síðustu sex deildarleikjum sínum og er taplaust í síðustu sjö leikjum. Nordsjælland tapaði fyrsta leiknum eftir að Rúnar Alex kom aftur inn í liðið en hefur ekki tapað síðan og náð í 17 stig af 21 mögulegu stigi frá því í lok febrúar. Þetta byrjaði samt ekki alltof vel fyrir Nordsjælland-liðið sem lenti undir eftir aðeins átta mínútna leik. Þannig var staðan fram í byrjun seinni hálfleiks. Emiliano Marcondes jafnaði metin á 47. mínútu og kom Nordsjælland síðan yfir með sínu öðru marki á 73. mínútu. Marcus Ingvartsen innsiglaði síðan sigurinn átta mínútum síðar og skoraði síðan sitt annað mark og fjórða mark Nordsjælland á annarri mínútu í uppbótartíma. Rúnar Alex fékk fjögur skot á sig í leiknum og varði þrjú þeirra. Hann spilaði allar 90 mínúturnar í áttunda leiknum í röð. Nordsjælland var í tíunda sæti deildarinnar eftir tap á móti Lyngby 17. febrúar síðastliðinn, sem var fyrsti leikur Rúnars Alex, en liðið hefur brunað upp töfluna síðan þá. Nordsjælland komst upp fyrir Midtjylland og í þriðja sæti með sigrinum í dag en Midtjylland á reyndar leik inni. FC Kaupmannahöfn er í efsta sæti deildarinnar og nú með sextán stigum meira en Nordsjælland-liðið.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjá meira