Hinn grunaði leiddur fyrir dómara í dag Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. mars 2017 11:43 Maðurinn sem er í haldi vegna málsins var skipverji á grænlenska togaranum Polar Nanoq. vísir/anton brink
Maðurinn sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana verður leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum sem verið hefur í varðhaldi í tíu vikur. Maðurinn hefur staðfastlega neitað sök er varðar aðild að dauða Birnu en hefur játað aðild að fíkniefnainnflutning í togaranum Polar Nanoq þar sem fundust um tuttugu kíló af hassi við leit lögreglu og starfsmanna tollsins. Héraðssaksóknari hefur tvær vikur til stefnu til að gefa út ákæru en tólf vikur er hámarkslengd gæsluvarðhalds án útgáfu ákæru. Rannsókn lögreglu er lokið og er krafan um gæsluvarðhald í dag á grundvelli almannahagsmuna. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagðist í samtali við Vísi á miðvikudag ekki geta tjáð sig um framgang mála, að öðru leyti en því að embættið hafi byrjað að yfirfara öll gögn um leið og þau bárust, þann 17. mars síðastliðinn. Embættið hafði þó fengið einhver málsgögn fyrir þann tíma. Mál Birnu var sent héraðssaksóknara eftir að lífsýnarannsóknum lauk en lífsýnin voru send til Svíþjóðar til greiningar. Niðurstöður rannsóknanna styðja grun lögreglunnar um að maðurinn sem situr í haldi, skipverji af togaranum Polar Nanoq, hafi ráðið Birnu Brjánsdóttur bana.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Sjá meira