Algjör skortur á heimasigrum í baráttunni um Hafnarfjörðinn í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2017 18:00 FH-ingar fagna hér sigri á Ásvöllum í gær. Vísir/Ernir
FH-ingar stigu stórt skref í átta að deildarmeistaratitlinum með sigri á Haukum í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í Olís-deild karla í handbolta í gærkvöldi. FH-liðið vann þarna sinn annan sigur á Haukum í vetur og er með eins stigs forskot og betri innbyrðisstöðu á Eyjamenn fyrir lokaumferðina.Sjá einnig:Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - FH 28-30 | FH-ingar komnir á toppinn eftir sigur í grannaslag FH-liðið hefur unnið 4 af 6 leikjum sínum á móti Haukum og ÍBV í Olís-deildinni í vetur en einu. Þeir unnu Eyjamenn bæði á heimavelli og útivelli en sömu sögu er ekki hægt að segja af sigurleikjum liðsins á móti nágrönnunum úr Hafnarfirði. Það er athyglisvert að FH vann Hauka í báðum leikjum liðanna á Ásvöllum í deildinni í vetur en Haukarnir unnu aftur á móti leikinn á heimavelli FH í Kaplakrika. FH er því með þessum sigri að tryggja sér heimavallarrétt í mögulegu einvígi á móti Haukum í úrslitakeppninni en liðinu hefur gengið betur á Ásvöllum en í Kaplakrika í vetur.Sjá einnig:Gunnar: Glórulaust hjá Heimi FH-liðið hefur alls spilað þrettán heimaleiki í Kaplakrika í deildinni og unnið átta þeirra eða 62 prósent. FH-liðið hefur unnið 54 prósent útileikja sinna (7 af 13). FH-ingar hafa fengið fleiri stig (5 stig) en Haukar (3) í fjórum deildarleikjum liðanna á Ásvöllum undanfarin tvö tímabil en Hafnarfjarðarliðin tvö eru hinsvegar með jafnmörg stig út úr tveimur leikjum liðanna í Kaplakrika.Leikir FH og Hauka í Olís-deildinni í vetur:12. október í Schenkerhöllinni á Ásvöllum FH vann 4 marka útisigur (28-24)15. desember í Kaplakrika Haukar unnu 1 marks útisigur (30-29)29 mars í Schenkerhöllinni á Ásvöllum FH vann 2 marka útisigur (39-28)
Olís-deild karla Mest lesið Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Handbolti Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa Körfubolti „Á eftir bolta kemur barn“ Íslenski boltinn Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Handbolti Kenna Donald Trump og falli Bandaríkjadals um sjö milljarða tap Fótbolti Í lífstíðarbann fyrir þessa óhuggulegu tæklingu Fótbolti „Þetta er ekki flókið“ Handbolti „Donald Trump er algjör hálfviti“ Sport Fleiri fréttir Þjálfari Ítalíu smeykur við Gísla og Ómar Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin „Geri mér vonir um að þetta verði mótið þar sem allt smellur“ Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ „Þetta er ekki flókið“ Haukar sneru aftur á sigurbraut gegn Selfossi Alfreð lét sér einn hornamann nægja og stýrði Þjóðverjum til sigurs Spánverjar lögðu Serba og Frakkar völtuðu yfir Tékka Uppgjörið: ÍR - ÍBV 26-29| Eyjakonur tylltu sér á toppinn EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Viktor Gísli brattur: „Bara jákvætt að það sé pressa“ Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Stelpurnar okkar fögnuðu stórum sigrum Ungverski línumaðurinn verður ekki með á EM „Allt um þjóðhátíðina í Kristianstad“ Danir voru líka að hugsa um að ráða Dag Sigvaldi ekki hafnað launalækkun Lindgren segir að þetta verði ár Íslands Mætum „Napóleon“ og lærisveinum hans í fyrsta leik á EM í handbolta Meðalaldur íslenska landsliðsins einn sá hæsti á EM Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta skammarlegt“ Anton og Jónas dæma fyrsta leik á EM Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Árituð landsliðstreyja á uppboði til styrktar Ljósinu Sjá meira