Skipverjinn var yfirheyrður í morgun í fyrsta skipti í viku Sunna Karen SIgurþórsdóttir skrifar 10. febrúar 2017 18:49 Skipverjinn leiddur út úr Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku en hann situr í gæsluvarðhaldi og einangrun grunaður um morðið á Birnu Brjánsdóttur. vísir/anton brink
Maðurinn sem grunaður er um að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur bana í síðasta mánuði var yfirheyrður í morgun. Rúm vika er frá síðustu yfirheyrslum og hefur maðurinn nú setið í einangrun á Litla-Hrauni í þrjár vikur. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, segist ekki geta tjáð sig um efni yfirheyrslnanna, að öðru leyti en því að ekki liggi fyrir játning í málinu. Aðspurður hvort maðurinn neiti sök í málinu, segist Grímur ekki geta tjáð sig frekar. Lögreglan bíður enn niðurstöðu úr rannsókn á lífsýnum af fatnaði og öðrum munu sem lagt var hald á í tengslum við málið, en sýnin voru send utan til rannsóknar fyrir þremur vikum. Búið er að fara yfir öll sönnunargögn í málinu og verið er að undirbúa gagnapakka sem sendur verður héraðssaksóknara. Lögregla og ákæruvald hafa tólf vikur frá handtöku til þess að gefa út ákæru. Sem fyrr segir hefur maðurinn, sem var skipverji á togaranum Polar Nanoq, setið í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur.
Birna Brjánsdóttir Mest lesið Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Innlent Reynslubolti kveður lögregluna Innlent Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Innlent Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Erlent Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Kennarar beittir ofbeldi af nemanda á jólaskemmtun Innlent Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Innlent Fleiri fréttir Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Hæstiréttur vill ekki hlýða á Kristján Markús Kennarar beittir ofbeldi af nemanda á jólaskemmtun Halla forseti opnar sig um kynferðisbrot í æsku Íslendingar í alvarlegu umferðarslysi í Suður-Afríku Fjögur vilja stöðu ríkislögreglustjóra Þrír vasaþjófar handteknir á gistiheimili Laugarneshverfi Starfslokasamningar undirstofnana kostað hátt í 175 milljónir Reynslubolti kveður lögregluna Leitaði á lögreglustöð til að komast úr járnunum Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Frumvarp um kílómetragjald samþykkt og þingmenn komnir í jólafrí Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Sjá meira