Slóvenar fengu bronsið eftir ótrúlega endurkomu Kristinn Páll Teitson skrifar 28. janúar 2017 21:18 Slóvenar neituðu að gefast upp í kvöld. Vísir/Getty
Slóvenar unnu bronsverðlaunin á Heimsmeistaramótinu í handbolta eftir hreint út sagt ótrúlegan leik gegn Króatíu í leiknum upp á bronsverðlaunin sem lauk rétt í þessu en leiknum lauk með 31-30 sigri Slóvena. Slóvenar virtust þurfa að sætta sig við fjórða sætið þegar tíu mínútur voru til leiksloka og átta mörkum undir en ótrúlegur viðsnúningur þeirra tryggði þeim bronsverðlaunin. Slóvenar áttu möguleika á því að vinna til verðlauna á stórmóti í aðeins annað skiptið í sögu handboltalandsiðsins en liðið vann til silfurverðlauna á EM í Slóveníu 2004. Besti árangur liðsins á Heimsmeistaramótinu fram að þessu var fjórða sætið á Spáni 2013 þar sem liðið tapaði einmitt á móti Króötum í leiknum upp á bronsverðlaunin. Liðin skiptust á mörkum fyrstu mínútur leiksins en Króatar tóku stjórn á leiknum snemma leiks. Gekk króatíski sóknarleikurinn vel og fengu þeir auðveld mörk sem skapaði um tíma sex marka forskot en Króatar leiddu 18-13 í hálfleik. Króatar virtust ætla að gera út um leikinn í upphafi seinni hálfleiks þegar þeir náðu átta marka forskoti í stöðunni 24-18 en það virtist vekja Slóvenana til leiks. Fimm slóvensk mörk í röð þegar þeir breyttu stöðunni úr 24-29 í 29-29 þýddu að það voru rafmagnaðar lokamínútur í Frakklandi. Króatar náðu forskotinu á ný þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en Slóvenar svöruðu með tveimur mörkum úr sitt hvoru horninu og náðu forskotinu á ný. Var það í fyrsta skiptið sem Slóvenar voru yfir í leiknum frá því í stöðunni 3-2 en slóvenska vörnin setti einfaldlega í lás á síðustu ellefu mínútunum og unnu upp átta marka mun. Króatar tóku langa sókn undir lok leiksins en slóvenska vörnin mætti þeim af fullum krafti og hleypti króatísku skyttunum aldrei í gott skot og fór það því svo að Slóvenar unnu nauman en ótrúlegan sigur.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Dómarinn hlýtur mikið lof fyrir stundarbræði í garð Jake Paul og Joshua Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Calvert-Lewin hættir ekki að skora Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Handbolti Madrídingar anda ofan í hálsmálið á Börsungum Fótbolti Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira