Bayern nýtti sér mistök Leipzig og fór á toppinn | Reus reddaði Dortmund Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. desember 2016 16:21
Bayern München er komið á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 5-0 stórsigur á Wolfsburg á Allianz Arena í dag. Robert Lewandowski skoraði tvö mörk fyrir Bayern og þeir Arjen Robben, Thomas Müller og Douglas Costa sitt markið hver. Þetta var fyrsta mark Müllers á tímabilinu en þessi mikli markaskorari hefur verið ískaldur í vetur. Bayern er með 33 stig, jafn mörg og Red Bull Leipzig en betri markatölu. Spútniklið Leipzig tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu þegar það laut í gras fyrir Ingolstadt, 1-0, á útivelli. Með sigrinum komst Ingolstadt úr botnsæti deildarinnar. Marco Reus bjargaði stigi fyrir Borussia Dortmund þegar hann jafnaði metin gegn Köln á 90. mínútu. Lokatölur 1-1. Dortmund er í 6. sæti deildarinnar en Köln í því sjöunda. Alfreð Finnbogason lék ekki með Augsburg þegar liðið tapaði 1-0 fyrir Hamburg á útivelli. Alfreð er meiddur í nára og spilar væntanlega ekkert fyrr en á næsta ári. Þá vann Freiburg 1-0 sigur á Darmstadt á heimavelli.
Þýski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira