Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Skallagrímur 74-76 | Borgnesingar með mikilvægan sigur Ingvi Þór Sæmundsson í Icelandic Glacial höllinni skrifar 9. desember 2016 21:45 Flenard Whitfield var stigahæstur að vanda hjá Skallagrími. vísir/eyþór
Skallagrímur fór bæði stigin heim í Borgarnes eftir tveggja stiga sigur, 74-76, á Þór í Þorlákshöfn í 10. umferð Domino's deildar karla í kvöld. Með sigrinum komst Skallagrímur upp í 5. sæti deildarinnar en Þór Þ., sem er búinn að tapa fimm leikjum í röð, er í því áttunda. Borgnesingar voru í bílstjórasætinu nánast allan leikinn. Skallagrímur leiddi með fimm stigum í hálfleik og fyrir fjórða og síðasta leikhlutann var staðan 55-63, gestunum í vil. Þórsarar komu með sterkt áhlaup í 4. leikhluta og náðu fjögurra stiga forystu, 73-69, þegar tvær mínútur voru eftir. En Borgnesingar sýndu styrk á lokakaflanum og ekki síst ungu leikmennirnir í liðinu. Davíð Ágústsson jafnaði metin í 73-73 með risastórum þristi og Kristófer Gíslason skoraði svo sigurkörfuna. Lokatölur 74-76, Skallagrími í vil.Af hverju vann Skallagrímur? Þótt leikurinn hafi verið jafn og munurinn aldrei mikill voru Borgnesingar alltaf með yfirhöndina. Þeir spiluðu sterka vörn og í sókninni voru margir sem lögðu hönd á plóg. Gestirnir hittu vel fyrir utan, og þá sérstaklega í fyrri hálfleik og liðsframlagið var meira og betra hjá þeim en heimamönnum.Bestu menn vallarins: Tobin Carberry skilaði flottum tölum, 33 stigum og 15 fráköstum, og var illviðráðanlegur á köflum. Bandaríkjamaðurinn var þó ekki með eina einustu stoðsendingu sem er athyglisvert í ljósi þess að hann var með boltann í höndunum meirihlutann af leiknum. Hjá Skallagrími voru margir sem áttu góðan leik. Magnús Þór Gunnarsson var öflugur í fyrri hálfleik og skoraði þá 11 af 13 stigum sínum. Flenard Whitfield hitti illa en skilaði samt 21 stigi og 12 fráköstum. Darrell Flake var drjúgur sem og ungu mennirnir, Davíð og Kristófer, sem sýndu mikinn styrk undir lokin.Tölfræði sem vakti athygli: Þór hitti aðeins úr einu af 19 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Það gerir 5% skotnýtingu. Þá gaf Þorlákshafnarliðið aðeins fimm stoðsendingar í öllum leiknum sem sýnir hversu einhæfur sóknarleikur þess var.Hvað gekk illa? Sóknarleikur Þórsara var eins og áður sagði einhæfur og á köflum var eins og Carberry væri að spila einn á móti öllum. Vörn Þórsara var ágæt en liðið þarf að bæta sóknarleikinn til að komast aftur á sigurbraut.Einar Árni: Eins og staðan er núna hefur enginn trú á okkur Það var þungt hljóðið í Einari Árna Jóhannsyni, þjálfara Þórs Þ., eftir tapið fyrir Skallagrími í kvöld. Þetta var fimmta tap Þórsara í röð og Einar Árni segir að þeir séu komnir í fallbaráttu. „Þetta eru mikil vonbrigði. Þetta er framhald frá síðustu vikum,“ sagði Einar Árni sem var ekki nógu sáttur með spilamennsku sinna manna í kvöld. „Það var einhvern veginn meiri kraftur í þeim. Mér fannst við gera vel í koma til baka og vorum fjórum stigum yfir þegar tvær mínútur voru eftir. En við gerum fullt af mistökum og tökum þriggja stiga skot þegar við áttum að fara á körfuna.“ Sóknarleikur Þórs var slakur í kvöld en til marks um það skoraði liðið aðeins eina þriggja stiga körfu og gaf aðeins fimm stoðsendingar í öllum leiknum. „Sóknarleikur og höfuðið á okkur er það sem við þurfum að hugsa mest um fyrir næsta leik. Þeir skoruðu 76 stig og á okkar heimavelli á það að duga,“ sagði Einar Árni. Þjálfarinn segir að Þórsarar verði núna að horfast í augu við stöðuna, að þeir eru í fallbaráttu. „Þetta er bara staðan, við erum ekki betri en þetta í dag. Við erum bara í fallbaráttu, þótt hún sé breið og mikil. Ef það hefur verið að plaga okkur að menn töluðu vel um okkur í upphafi, þá getum við hætt að bera það á öxlunum,“ sagði Einar Árni. „Eins og staðan er núna hefur enginn trú á okkur, enda erum við ekki að spila vel. Bikarleikurinn gegn Keflavík fær mann til að hugsa um Jekyll og Hyde. Við nálguðumst verkefnin á ólíkan hátt. Þar var mikil stemmning og við fengum mikið liðsframlag en hérna duttum við niður á plan sem við höfum oft sýnt á undanförnum vikum.“Finnur: Spiluðum dúndurvörn Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms, var skiljanlega sáttur með góðan sigur sinna manna á Þór í Þorlákshöfn í kvöld. „Þetta var meiriháttar. Mér fannst við eiga þetta skilið. Við spiluðum dúndurvörn, reyndar eins og þeir. En mér fannst við vera betri í þessum leik,“ sagði Finnur sem kvaðst ánægður með liðsheildina í leiknum í kvöld. „Menn komu vel stemmdir til leiks. Við töpuðum illa fyrir Tindastóli síðast og við ætluðum að laga það. Allir sem spiluðu komu með framlag,“ sagði Finnur. Hann hrósaði ungu strákunum hjá Skallagrími sem voru sérlega mikilvægir á lokakafla leiksins. „Heldur betur. Við misstum Sigtrygg Arnar [Björnsson], leikstjórnandann okkar, út af undir lokin en þeir komu inn á, héldu haus og voru naglar.“ Skallagrímur var búinn að tapa tveimur leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld. Finnur var ánægður að sjá hvernig Borgnesingar svöruðu fyrir þau töp í kvöld. „Engin spurning. Þetta eru flottir strákir. Ég hef trú á þeim og þeir hafa trú á verkefninu,“ sagði Finnur að lokum.Bein lýsing: Þór Þ. - Skallagrímur
Dominos-deild karla Mest lesið Sautján ára íþróttastjarna drepin í loftárás Rússa Sport Sjáðu ræðu Niks eftir dramatískan kveðjuleik: „Þetta var fullkominn endir“ Fótbolti Lið Blæs rak þjálfarann og íþróttastjórann Handbolti Vålerenga fór illa að ráði sínu Fótbolti Tryggvi og félagar unnu 63 stiga sigur Körfubolti Dagskráin í dag: Flottir leikir í Bónus deild karla og Big Ben Sport Landslið Íslands í alpagreinum skíðaíþrótta valin Sport „Ótrúlegt hvernig dómarinn tók Englendingana í framlengingunni“ Fótbolti Björn Lúkas kominn í 8-manna úrslit á HM í MMA Sport Uppgjörið: Fortuna - Breiðablik 2-4 (3-4) | Ótrúleg endurkoma Blika Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi og félagar unnu 63 stiga sigur Brjálaðist og réðst á yngri systur sína Manchester United með lið í NBA LeBron hafði ekki upplifað þetta síðan hann var níu ára Viðsnúningur á Extra-leikunum: „Margir sem spáðu því að þú myndir tapa 22-0“ Uppgjörið: Portúgal - Ísland 100-70 | Heit kartafla í Portúgal Sú dáðasta í sögu liðsins mætti í dulargervi og plataði alla Þrjár breytingar fyrir leikinn mikilvæga í kvöld Stjörnur Grindavíkurliðsins flytja heim til Grindavíkur Martin stigahæstur á leið í undanúrslit Stelpurnar okkar skelltu sér í sjóinn Fauk í Draymond Green: „Hann hélt bara áfram að kalla mig konu“ LeBron nálgast endurkomu og met Fyrsti þjálfarinn í NBA fokinn Jón Axel gat ekki komið í veg fyrir tap Elvar með flestar stoðsendingar í sigri Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Styrmir sterkur í sigri á Spáni Tindastóll - Þór Þ. 96-82 | Þægilegt hjá Stólunum Mark Cuban mættur aftur Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Uppgjörið: Keflavík - ÍA 96-72| Sigur Keflavíkur aldrei í neinni hættu Meistararnir stungu af í seinni Uppgjörið: ÍR - Grindavík 78-86 | Tveimur hent úr húsi en toppliðið heldur flugi KR - Njarðvík 88-97 | Dýrmætur sigur gestanna ÍA sækir Kanann sem Ármann losaði Extraleikarnir: Mættu báðir með markvörð úr silfurliðinu í Peking Sjá meira