Björk með aukatónleika í Eldborg Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 2. október 2016 11:17 Björk á tónleikum í London í september. Vísir/Getty
Uppselt er á tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni en söngkonan kemur fram þann 5. nóvember í Eldborg. Forsala fyrir miðahafa á Airwaves hófst á síðastliðinn fimmtudag en samkvæmt færslu á Facebook-síðu Airwaves seldist hratt upp á tónleikana. Því hefur aukatónleikum verið bætt við og verða þeir einnig í Eldborg þann 8. nóvember. Miðasala hefst á þriðjudagsmorgun klukkan 10 en miðahafar Airwaves munu geta keypt miða á tónleikana frá klukkan 8. Hver miðahafi á Airwaves gat keypt alls fjóra miða á tónleikana þann 5. nóvember í forsölu en ljóst er að eftirspurnin eftir því að sjá Björk á tónleikum er mikil. Skal kannski engan undra en hún átti að halda tónleika á Airwaves í fyrra en aflýsti þeim. Nýlega hélt hún síðan tvenna tónleika í London við gríðarlega góðar undirtektir en líkt og á tónleikana í Eldborg seldist mjög fljótt upp á báða þá tónleika.
Airwaves Tengdar fréttir Björk með tónleika á Iceland Airwaves Björk Guðmundsdóttir mun halda tónleika á Iceland Airwaves í ár en tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 5. nóvember klukkan 17. 27. september 2016 12:20 Mest lesið Nakinn á kóræfingu Lífið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira
Björk með tónleika á Iceland Airwaves Björk Guðmundsdóttir mun halda tónleika á Iceland Airwaves í ár en tónleikarnir fara fram í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 5. nóvember klukkan 17. 27. september 2016 12:20