Jón Axel og Tryggvi fóru á kostum í mögnuðum sigri á Rússum Kristinn Páll Teitsson skrifar 16. júlí 2016 19:45 Jón Axel í leik gegn KR í vor. Mynd/Vísir
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum undir 20 ára vann frækinn sigur á Rússlandi á EM U20 sem fer fram í Grikklandi þessa dagana. Eftir að hafa lent sextán stigum undir í fyrsta leikhluta náðu íslensku leikmennirnir að snúa leiknum sér í hag. Íslenska liðið virtist ætla að fá skell í fyrsta leikhluta en Rússarnir voru einfaldlega skrefinu á undan og leiddu 25-9 að fyrsta leikhluta loknum. Það virist vekja strákana til lífsins þar sem þeir svöruðu með frábærum öðrum leikhluta og minnkuðu muninn niður í þrjú stig fyrir lok fyrri hálfleiks 31-34. Rússarnir náðu um tíma ellefu stiga forskoti í þriðja leikhluta en þá tók Jón Axel Guðmundsson einfaldlega leikinn yfir. Setti hann 18 af 20 stigum Íslands í þriðja leikhluta og jafnaði leikinn 51-51 þremur sekúndum fyrir lok þriðja leikhluta. Rússarnir leiddu framan af í lokaleikhlutanum en taugar íslenska liðsins reyndust sterkari á lokasprettinum. Náði íslenska liðið forskotinu um miðbik leikhlutans og að halda forskotinu allt til loka leiksins en leiknum lauk með sex stiga sigri íslenska liðsins eftir að Kári Jónsson gulltryggði sigurinn af vítalínunni. Jón Axel fór á kostum í sóknarleik íslenska liðsins og lauk leik með 32 stig ásamt því að taka 11 fráköst en Tryggvi Hlínarson átti einnig frábæran leik með 11 stig og 19 fráköst í íslenska liðinu.
Dominos-deild karla Mest lesið Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Flagg fer til Dallas Körfubolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Neymar hlustaði á hjartað sitt Fótbolti Dagskráin: Stelpurnar hennar Betu í beinni og Norðurálsmótið Sport Fleiri fréttir Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Álftnesingar krækja í lykilmann Keflavíkur Sjá meira