Hermann: Þurftum að ná þessum sigri Ingvi Þór Sæmundsson á Flórídana-vellinum skrifar 28. júní 2016 22:22 Hermann fylgist með á hliðarlínunni í kvöld. vísir/eyþór „
Maður var næstum því búinn að gleyma hvernig þetta er,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eftir fyrsta sigur hans manna í Pepsi-deildinni í ár. „Ég held að hver einasti leikmaður hafi lést um 50 kg, það er smá byrði farin en þetta var alltaf á leiðinni.“ Fyrir leikinn gegn Víkingi í kvöld höfðu Fylkismenn tapað nokkrum jöfnum leikjum í sumar. En hvað breyttist í þessum leik? „Við náðum að klára leikinn, héldum einbeitingu og ég fann það í vikunni að það var neisti í okkur. Við höfum allir gríðarlega trú á því að sigurinn myndi koma,“ sagði Hermann sem var ánægður með þátt þeirra sem komu inn á í liði Fylkis í kvöld. „Það þurfti ferskar lappir inn og varamennirnir komu allir mjög sterkir inn. Það er mjög gaman þegar menn koma inn og breyta gangi leiksins.“ Fylkismenn eru nú aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti og eiga leik gegn Val í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins á sunnudaginn kemur. Það er því aðeins bjartara yfir mönnum í Árbænum eftir þennan fyrsta sigur. „Við þurftum bara að ná þessum sigri. Það er einmanalegt á botninum en þú skapar þér þína eigin heppni. Við höfum alltaf trú á því að við vinnum hvern einasta leik. Og við vissum ef að við myndum gera hlutina rétt myndi styttast í sigurinn,“ sagði Hermann að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Handbolti Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Körfubolti „Það er komin pressa“ Körfubolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Skagamenn eru bara ennþá að leita að nýju DNA“ Viðar Örn settur í agabann Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ „Ef Örvar hefði látið sig detta hefði þetta verið víti“ Uppgjörið: Þróttur - Grindavík/Njarðvík 1-2 | Nýliðarnir unnu í Laugardalnum Uppgjörið: Fram - Víkingur 0-1 | Víkingssigur í Reykjavíkurslag „Þetta var vont“ „Get ekki sagt að þetta hafi verið sannfærandi sigur“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 3-2 | Ótrúlegur sigur Blika Þegar Martin Eyjólfsson varð Bjargvætturinn Sjáðu mark Hallgríms frá miðju Umfjöllun: Stjarnan - FH 1-2 | FH hafði betur í fjörugum nágrannaslag Uppgjörið ÍBV - Þór/KA 2-0 | Fullkomin byrjun nýliðanna heldur áfram Uppgjörið: KA - ÍBV 2-0 | Sjálfsmark sökkti gestunum í lok leiks Besta byrjun KR í efstu deild síðan árið 1959 Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Umfjöllun og viðtöl: ÍA - Keflavík 1-3 | Nýliðarnir hirtu stigin þrjú gegn Skagamönnum Landsliðskonan sögð löt en svaraði svo með flottum leik Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KR 2-3: Halda áfram að kremja mótherjana eins og skordýr Fylgist ekki með umræðunni um starf sitt: „Maður er samt ekkert vitlaus“ Bragi Karl skoraði í fyrsta sigri Njarðvíkinga Ólafur Ingi hundfúll „Ég er búinn að vera að bíða lengi eftir þessu tækifæri“ Umfjöllun: Breiðablik - FH 3-3 | Sex marka jafntefli í Kópavogi Uppgjörið: Fram - Valur 3-2 | Byström kom inná og skoraði sigurmark í þriðja sigri Fram í röð Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Þór 6-0 | Nýliðar teknir í kennslustund Hræðileg en sanngjörn úrslit: „Við þurfum að vera aðeins stærri“ „Þá verðum við á góðum stað“ Sjá meira