Freyr: Fyllum völlinn 20. september Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júní 2016 22:20 Freyr Alexandersson fylgist með markasúpunni í kvöld. vísir/eyþór
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er svo gott sem komið á EM 2017 eftir 8-0 stórsigur á Makedóníu á Laugardalsvelli í kvöld. „Við spiluðum þokkalega vel. Við vorum auðvitað miklu betra liðið en það er svo erfitt að spila svona leiki,“ sagði Freyr sem kvaðst einnig ánægður með mætinguna á leikinn en rúmlega 4000 manns gerðu sér ferð í Laugardalinn í kvöld. „Við hefðum getað slegið einhver met, og auðvitað á maður að sækjast eftir því, en þetta var fínt,“ sagði landsliðsþjálfarinn sem hefur aðeins horft upp á íslenska landsliðið tapa einu sinni í síðustu 13 leikjum sínum. „Það er meiriháttar, ég var ekki búinn að telja þetta. Eigum við ekki að halda því áfram?“ Freyr vill sjá fullan Laugardalsvöll, 20. september næstkomandi þegar Skotar koma í heimsókn í síðasta leiknum í undankeppninni. Þá verða nákvæmlega 35 ár síðan íslenska kvennalandsliðið lék sinn fyrsta landsleik, sem var einmitt gegn Skotlandi. „Við fáum þann leik heima og það er tími til kominn að við fyllum völlinn. Við skulum gera það 20. september, öll þjóðin. Það verður toppleikur tveggja frábærra liða,“ sagði Freyr að lokum.Nánar verður rætt við Frey í Fréttablaðinu á morgun.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Sjá meira