Bayern bikarmeistari í síðasta leik Guardiola 21. maí 2016 20:51 Thiago, miðjumaður Bayern, leikur hér á varnarmann Dortmund. Vísir/Getty
Bayern Munchen varð bikarmeistari í Þýskalandi í dag en eftir markalausar 120. mínútur þurfti vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn og höfðu leikmenn Bayern betur þar. Var mikil eftirvænting fyrir leiknum í Þýskalandi en Dortmund var eina liðið sem veitti Bayern einhverja keppni um þýska meistaratitilinn. Þá var þetta síðasti leikur Bayern Munchen undir stjórn Pep Guardiola. Mats Hummels byrjaði leikinn í miðri vörninni hjá Dortmund í dag en þetta er síðasti leikur hans fyrir félagið eftir að gengið var frá félagsskiptum hans til Bayern Munchen. Var hann tekinn af velli á 69. mínútu gegn verðandi samherjum sínum. Liðunum gekk illa að skapa færi og þurfti því að grípa til framlengingar og síðar meir vítaspyrnukeppni en besta færi leiksins fékk Pierre-Emerick Aubameyang eftir undirbúning Henrikh Mkhitaryan en skot hans fór yfir. Þurfti því vítaspyrnukeppni til að útkljá leikinn í Berlín og þar reyndust taugar þýsku meistaranna sterkari. Sven Bender, miðjumaður Dortmund, lét Manuel Neuer verja frá sér og Sokratis fylgdi því eftir með því að skjóta framhjá. Kom því ekki að sök þegar varið var frá Joshu Kimmich því Arturo Vidal, Douglas Costa, Robert Lewandowski og Thomas Müller nýttu víti sín fyrir Bayern Munchen og tryggðu liðinu sigurinn.
Þýski boltinn Mest lesið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Fótbolti Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Enski boltinn „Leyfðum þremur leikmönnum að ganga frá okkur“ Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Enski boltinn Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Lamine Yamal sakaði menn um lygar eftir leik Mörk úr Meistaradeildinni: Sjáðu Osimhen hoppa upp fyrir Mbappé og Haaland Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Sjáðu atvikið: Hágrátandi Hakimi frá í nokkrar vikur Óstöðvandi Osimhen, magurt hjá Mourinho og Bilbao brenndir Böl Börsunga í Belgíu Foden í stuði gegn Dortmund Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans Nik fær Lindu Líf til Kristianstad Sandra María skoraði í svekkjandi leik Emelía með þrennu gegn FCK Óvænt úrslit í Meistaradeildinni „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Dældi fyrri afrekum inn á Instagram eftir vonbrigðin Valdi Isak en ekki Gyökeres í fyrsta landsliðshópinn sinn Leiðir Breiðabliks og Damir skilja Mál Alberts truflar landsliðið ekki Stuðningsmenn Bröndby enn á ný í vandræðum Vonar að Jóhann og Hörður gefi jafn mikið af sér og Aron Orri Steinn lengra frá því að ná þessum leikjum en þeim í síðasta glugga Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Svona var blaðamannafundur Arnars Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Ánægð með að mæta Íslandi „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Sjá meira