Atli Viðar: Er orðinn mjög góður í þessum svörum Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika skrifar 8. maí 2016 21:49 Atli Viðar skoraði sitt 108. mark í efstu deild í kvöld. vísir/anton
Atli Viðar Björnsson sýndi enn og aftur hvers hann er megnugur þegar hann tryggði FH sigur á ÍA tveimur mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. „Ég náði að koma mér á réttan stað og hirða frákast,“ sagði Atli Viðar eftir leikinn í kvöld. „Ég fékk bara þau skilaboð að reyna að klára leikinn og kreista fram mark sem þurfti til að vinna hann.“ Mark Atla Viðars kom aðeins fimm mínútum eftir að Jón Vilhelm Ákason jafnaði metin fyrir ÍA. Dalvíkingurinn var að vonum ánægður með hvernig FH-ingar brugðust við marki Skagamanna. „Við erum sáttir með að vinna leikinn og hafa kreist fram sigur úr því sem komið var. En mér fannst óþarfi að gera þetta svona tæpt, við vorum með öll völd á vellinum þangað til við misstum mann af velli. Þegar þú ert bara 1-0 yfir getur allt gerst,“ sagði Atli Viðar og vísaði þar til rauða spjaldsins sem Steven Lennon fékk. Atli Viðar hefur byrjað tímabilið af krafti og skorað í báðum leikjum FH eftir að hafa komið inn á sem varamaður. En vonast hann ekki til þess að byrja næsta leik gegn KR, sérstaklega í ljósi þess að Lennon verður í banni? „Ég vonast alltaf eftir því að spila sem flestar mínútur. Það verður bara að koma í ljós hversu margar þær verða á fimmtudaginn,“ sagði Atli Viðar pólitískur í svörum. „Ég er orðinn mjög góður í þessum svörum,“ sagði markaskorarinn hlæjandi að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Pálmi í ótímabundið leyfi Íslenski boltinn Eigandi Nott.Forest ákærður fyrir tengsl við glæpagengi Sport Stelpurnar okkar fá ekki leiki vegna sparnaðar Fótbolti Donald Trump að fá friðarverðlaun frá FIFA? Fótbolti Erfitt að heyra hvað Orri hefur þjáðst Fótbolti Fylgist spenntur með Viktori: „Þetta er með ólíkindum“ Fótbolti Endurkoma ársins: Á Norðurlandamót aðeins ellefu mánuðum eftir hálsbrot Sport Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Handbolti „Rokk og ról“ hjá Frey í villta vestrinu Fótbolti Hlýnun jarðar á að hafa mikil áhrif á maraþonhlaup í heimnum Sport Fleiri fréttir Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Sjá meira