Enn von um oddaleik þrátt fyrir risasigur í fyrsta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2016 15:30 Bræðurnir Helgi Már og Finnur Atli Magnússynir heilsast fyrir leikinn. Vísir/Ernir
KR-ingar unnu 30 stiga sigur á Haukum í gærkvöldi í fyrsta úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í Domino´s deild karla í körfubolta. Þetta er ekki fyrsta úrslitaeinvígið sem byrjar á skelli. Þrisvar sinnum áður hefur lið unnið stærri sigur í leik eitt í lokaúrslitum og í tveimur þeirra voru það líka Haukar sem fengu skellinn. Metið er síðan 1986 þegar Njarðvíkingar unnu 41 stigs sigur á Haukum í fyrsta leik, 94-53. Njarðvíkingar tryggðu sér síðan Íslandsmeistaratitilinn með tveggja stiga sigri í Strandgötu í næsta leik en í þá daga þurfti bara að vinna tvo leiki. Það er ekki útilokað að þetta einvígi fari alla leið í oddaleik ef marka má söguna. Njarðvíkingar unnu nefnilega 37 stiga sigur á Keflavík í fyrsta leik lokaúrslitanna 1991 en úrslitin réðust ekki fyrr en í oddaleik þar sem reyndar Njarðvíkingar höfðu betur. Þetta eru önnur lokaúrslitin í röð sem Haukar byrja á skelli en þeir töpuðu með 36 stigum á móti Keflavík þegar þeir voru síðast í úrslitaeinvíginu fyrir 23 árum eða vorið 1993. Keflavík vann þá úrslitaeinvígið á endanum 3-0. Þetta er ennfremur í annað skiptið sem KR-ingar vinna 30 stiga sigur í fyrsta leik í lokaúrslitum en því náðu þeir einnig á móti Stjörnunni í úrslitaeinvíginu 2011. Stjarnan jafnaði þá metin í leik tvö en KR vann einvígið á endanum 3-1. Það hefur aðeins tveimur liðum tekist að vinna titilinn eftir tuttugu stiga tap í fyrsta leik en þau töpuðu með 20 eða 21 stigi. Það eru lið Haukar frá 1988 og lið lið KR frá 2007. Haukar fengu nefnilega 20 stiga skell í fyrsta leik í Njarðvík þegar þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta og eina skiptið fyrir 28 árum síðan. Haukar svöruðu með 6 stiga sigri á heimavelli sínum og tryggðu sér síðan sigurinn í tvíframlengdum leik í Ljónagryfjunni í Njarðvík.Stærstu sigrar í fyrsta leik í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil karla41 stig Lokaúrslit 1986Njarðvík-Haukar 94-53 (Njarðvík vann 2-0)37 stig Lokaúrslit 1991Njarðvík-Keflavík 96-59 (Njarðvík vann síðan 3-2)36 stig Lokaúrslit 1993Keflavík-Haukar 103-67 (Keflavík vann síðan 3-0)30 stig Lokaúrslit 2011KR-Stjarnan 108-78 (KR vann síðan 3-1)30 stig Lokaúrslit 2016KR-Haukar 91-6124 stig Lokaúrslit 2001Njarðvík-Tindastóll 89-65 (Njarðvík vann síðan 3-1)24 stig Lokaúrslit 2013Grindavík-Stjarnan 108-84 (Grindavík vann síðan 3-2)22 stig Lokaúrslit 1992Keflavík-Valur 106-84 (Keflavík vann síðan 3-2)21 stig Lokaúrslit 2002Keflavík-Njarðvík 68-89 (Njarðvík vann síðan 3-0)21 stig Lokaúrslit 2007Njarðvík-KR 99-78 (KR vann síðan 3-1)20 stig Lokaúrslit 1988Njarðvík-Haukar 78-58 (Haukar unnu síðan 2-1)
Dominos-deild karla Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Íslenski boltinn Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Slógu saman heimsmetið í bakgarðshlaupum Sport Flagg fer til Dallas Körfubolti Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Enski boltinn Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira