Njarðvíkingar eru þegar búnir að skrifa nýja sögu í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2016 13:15 Haukur Helgi Pálsson hjá Njarðvík fagnar hér sigri í oddaleik í Garðabæ. Vísir/Anton
Njarðvíkingar eru komnir í oddaleik um sæti í lokaúrslitum þrátt fyrir að hafa komið inn í úrslitakeppni Domino´s deildar karla með sjöunda besta árangurinn. Njarðvíkingar eru þegar búnir að skrifa nýju sögu í úrslitakeppninni en liðið er það fyrsta til að vinna fimm leiki í úrslitakeppni af þeim sem hafa endað í 7. sæti eða neðar í deildarkeppninni. Njarðvíkingar töpuðu fjórum síðustu leikjum sínum í deildarkeppninni og komu því með langa taphrinu á bakinu inn í úrslitakeppnina. Þeir slógu Stjörnumenn út í oddaleik og hafa síðan unnið Íslandsmeistara KR tvisvar sinnum. Af þessum fimm sögulegu sigurleikjum komu þrír þeirra á útivelli en Njarðvíkingar unnu Stjörnumenn þrisvar sinnum í Ásgarði í Garðabæ í átta liða úrslitunum. Njarðvíkingar bættu met ÍR-ingar frá 2008 og Stjörnumanna frá 2014 þegar þeir unnu sinn fimmta leik í úrslitakeppninni í ár og jöfnuðu þar með einvígið í 2-2. ÍR-liðið frá 2008 sló Íslandsmeistara KR 2-1 í átta liða úrslitunum og komst síðan í 2-0 á móti verðandi Íslandsmeisturum Keflavíkur. Keflvíkingar unnu síðustu þrjá leiki einvígsins og síðan alla þrjá leikina á móti Snæfelli í lokaúrslitum. Stjörnumenn slógu Keflavík 3-0 út úr átta liða úrslitunum fyrir tveimur árum og töpuðu síðan 3-1 á móti verðandi Íslandsmeisturum KR í undanúrslitunum.Flestir sigrar í einni úrslitakeppni hjá liði sem kemur úr sjöunda sæti og neðar: 5 - Njarðvík 2016 (7. sæti) 4 - ÍR 2008 (7. sæti) 4 - Stjarnan 2014 (7.sæti) 3 - ÍA 1998 (8. sæti) 3 - KR 2013 (7. sæti)
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira