Jerry Sloan með Parkinsonsveikina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2016 16:45 Jerry Sloan. Vísir/EPA
Jerry Sloan, fyrrum þjálfari Utah Jazz í NBA-deildinni í körfubolta og meðlimur í heiðurshöll körfuboltans, tilkynnti það í gær að hann sé að glíma við Parkinsonsveiki og hann þjáist jafnframt af minnisleysi tengdu sjúkdómnum. Jerry Sloan er 74 ára gamall en hann hefur ekki þjálfað í NBA-deildinni síðan að hann hætti með Utah Jazz liðið 2011. Sloan greindist með sjúkdóminn síðasta haust en hann sagði Salt Lake Tribune frá veikindum sínum í gær. Hann segir ástæðu þess að hann segir nú frá þessu er að einkenni veikindanna séu nú orðin greinileg. Jerry Sloan var einn virtasti þjálfari NBA-deildarinnar á tíma sínum með Utah Jazz frá 1988 til 2011 en hann spilaði einnig sjálfur í 11 ár í NBA-deildinni þar af í tíu ár með Chicago Bulls. Toppur Sloan sem þjálfara Utah Jazz var þegar hann fór með liðið í úrslit NBA-deildarinnar tvö ár í röð, 1997 og 1998, en liðið tapaði þá í bæði skiptin fyrir Michael Jordan og félögum í Chicago Bulls. Karl Malone og John Stockton voru í fararbroddi í Utah-liðinu stærsta hluta tíma Sloan með liðið. Jerry Sloan var þriðji í sigurleikjum þegar hann hætti þjálfun en lið hans unnu 1221 leik eða 60,3 prósent leikja í boði undir hans stjórn. Jazz-liðið vann þrettán sinnum 50 leiki á tímabili í tíð hans og sextán tímabil í röð vann liðið fleiri leiki en það tapaði.
NBA Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Sádi-Arabía - Úrúgvæ | Úr sandinum á stóra sviðið Fótbolti Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira