Taka stöðuna á Kára í upphitun í kvöld Henry Birgir Gunnarsson skrifar 21. mars 2016 11:54 Kári Jónsson. vísir/anton
Það er ekki útilokað að Kári Jónsson spili með Haukum gegn Þór í kvöld þó svo hann hafi fengið heilahristing og tognað í baki og hálsi á föstudag. „Við munum taka stöðuna á honum í upphitun,“ segir Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, er Vísir heyrði í honum fyrir hádegið. „Honum líður ágætlega og hefur ekki verið með nein einkenni. Sjúkraþjálfarinn okkar tók höfuðhöggapróf á honum í gær sem hann stóðst.“Sjá einnig: Ívar um Kára: Verður vonandi svimalaus í dag Það hefur verið mikil umræða um alvarleika höfuðhögga í íslenskum íþróttum síðustu misseri. Almenna reglan er sú að ef íþróttamaður verður fyrir höfuðmeiðslum að þá hvílir hann í sjö daga. „Við erum ekki að fara að taka neina áhættu. Ef að hann finnur fyrir einhverju eða fær einhver einkenni að þá spilar hann ekki. Við förum með þrettán manns til Þorlákshafnar og verðum við öllu búnir.“ Þór vann fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Dominos-deildarinnar og Haukar verða að svara í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Körfuboltakvöld hefur upphitun klukkan 18.30 og leikurinn hefst svo klukkan 19.15. Hér að neðan má sjá er Kári meiðist er Ragnar Nathanaelsson fer harkalega í hann.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Leik lokið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færir Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira
Leik lokið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færir Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti
Leik lokið: Stjarnan - Ilves 1-0 | Guðmundur Baldvin færir Stjörnunni eins marks forskot til Finnlands Fótbolti