Hill sleppur við bann | Verður með á morgun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. mars 2016 12:18 Hill átti frábæran leik gegn Tindastóli á miðvikudaginn. vísir
Jerome Hill, leikmaður Keflavíkur, sleppur við leikbann og getur því leikið með sínum mönnum sem mæta Tindastóli í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino's deildar karla í körfubolta á morgun.Körfuknattleiksdeild Tindastóls kærði Hill til aganefndar KKÍ fyrir að slá til Helga Freys Margeirssonar í þriðja leik liðanna á miðvikudaginn.Atvikið má sjá í spilaranum hér að neðan. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ leit ekki á „erindi Tindastóls sem formlega kæru enda hafa félög skv. 6. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál ekki kærurétt í agamálum, heldur ábendingarétt,“ eins og segir í niðurstöðu nefndarinnar. Mat hennar er því að ekki sé ástæða til að gefa út kæru. Hill verður því í búning á morgun þegar Keflvíkingar freista þess að vinna og tryggja sér þar með oddaleik í einvíginu. Hill lék sem kunnugt er með Tindastóli framan af vetri áður en hann var látinn fara frá liðinu. Hann gekk skömmu síðar til liðs við Keflavík.Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar KKÍ er svohljóðandi: Aga- og úrskurðarnefnd barst kæra frá Kkd. Tindastóls vegna atviks úr leik Keflavíkur og Tindastóls í úrslitakeppni Domino´s deildar karla þann 23. mars s.l. Aga- og úrskurðarnefnd getur ekki litið á erindi Tindastóls sem formlega kæru enda hafa félög skv. 6. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál ekki kærurétt í agamálum, heldur ábendingarétt. Eftir að hafa litið á þau gögn sem bárust er það mat nefndarinnar að ekki sé ástæða til að gefa út kæru. Ákvörðun aga- og úrskurðarnefndar er ekki úrskurður, heldur ákvörðun um að taka málið ekki fyrir formlega eftir að að hafa skoðað málsatvik.
Dominos-deild karla Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Uppgjörið: RFS - Vestri 4-1 | Þurfa kraftaverk í Reykjavík Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira