Góð kaup fyrir Hauka að fá pabba... og svo mig Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. mars 2016 06:00 Petr Baumruk er goðsögn í lifanda lífi hjá Haukum enda skilaði hann mörgum titlum og góðum leikmanni af sér. vísir/ernir
Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í handbolta karla með sannfærandi sigri, 36-28, á Gróttu á heimavelli í fyrrakvöld. Það er erfitt að neita því að Haukar séu besta lið landsins en Íslandsmeistararnir hafa unnið 20 af 24 leikjum sínum í Olís-deildinni, skorað flest mörk allra liða og fengið á sig fæst. Hafnfirðingar verða því að teljast ansi líklegir til afreka í úrslitakeppninni sem hefst eftir mánuð.Haukavélin mallaði vel í leiknum gegn Gróttu þar sem margir lögðu hönd á plóg í sóknarleiknum. Alls komust tíu leikmenn Hauka á blað en sjö þeirra skoruðu fjögur mörk eða meira. Þeirra á meðal var skyttan öfluga Adam Haukur Baumruk en hann gerði fjögur mörk úr sjö skotum og lét auk þess til sín taka í vörninni.Adam Haukur á flugi gegn Val í undanúrslitum bikarsins.vísir/ernirVorum ekki tilbúnir gegn FH „Það er gott að vera búinn að klára þetta,“ sagði Adam í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann var nokkuð ánægður með spilamennsku Hauka í gær og sagði hana mun betri en í jafnteflinu gegn FH í síðustu viku. „Þetta gekk vel miðað við síðasta leikinn gegn FH þar sem við mættum ekki til leiks og vorum ekki tilbúnir.“ Enn er þremur umferðum ólokið í Olís-deildinni og Haukar hafa því svigrúm til að hvíla menn fyrir úrslitakeppnina. Tölvunarfræðineminn Adam segir þó mikilvægt Haukar missi ekki taktinn: „Við fáum smá tíma núna en það þýðir ekki að hætta alveg. Við þurfum að klára þessa þrjá leiki og koma sterkir inn í úrslitakeppnina.“ Adam, sem verður 22 ára síðar í mánuðinum, hefur verið í meistaraflokki í nokkur ár en hann fékk mun stærra hlutverk í Haukaliðinu eftir að Sigurbergur Sveinsson fór til Þýskalands í atvinnumennsku eftir tímabilið 2013-14. Haukum gekk ekki vel framan af síðasta tímabili en þeir toppuðu á réttum tíma. Og þrátt fyrir að vera ekki með heimavallarrétt í úrslitakeppninni unnu Hafnfirðingar alla sína leiki þar og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með stæl. Patrekur Jóhannesson kvaddi Hauka eftir tímabilið til að einbeita sér að þjálfun austurríska landsliðsins en við starfi hans tók Gunnar Magnússon. Adam segir að það hafi ekki orðið miklar breytingar hjá Haukum við þjálfaraskiptin.„Ég er eina skyttan þarna og á að skjóta á markið eins og skyttur gera.“vísir/ernirFær fullt skotleyfi „Nei, þetta er mjög svipað. Patti var búinn að leggja góðan grunn og Gunni byggir á þeim honum,“ sagði Adam sem fær fullt skotleyfi hjá Gunnari líkt og hann fékk hjá Patreki. „Ég er eina skyttan þarna og á að skjóta á markið eins og skyttur gera. Ég fæ traustið hjá Gunnari eins og ég fékk hjá Patta í fyrra. Ef maður fær færi verður maður að skjóta og þjálfarinn skilur það alveg og gefur manni leyfi.“ Haukar tóku þátt í EHF-bikarnum fyrir áramót og spiluðu m.a. tvo leiki við Arnór Atlason og félaga í franska liðinu Saint Raphael. Haukarnir spiluðu mjög vel í fyrri leiknum á Ásvöllum sem tapaðist með einu marki, 28-29. Í seinni leiknum fékk Hafnarfjarðarliðið hins vegar skell og féllu því úr leik.vísir/vilhelmNauðsynlegir Evrópuleikir Adam segir þessa Evrópuleiki mjög mikilvæga fyrir Haukaliðið. „Það er nauðsynlegt að fá þessa leiki til að sýna okkur og sjá hvernig íslenski handboltinn, og Haukar, standa í samanburði við hin liðin í Evrópu. „Fyrri leikurinn gegn Saint Raphael var rosalega góður og við spiluðum vel í 60 mínútur. En í útileiknum náðum við ekki að leysa vörnina þeirra og þeir voru bara betri,“ bætti Adam við. Sigurganga Hauka á þessari öld er ótrúleg en frá árinu 2000 hefur liðið níu sinnum orðið Íslandsmeistari, fimm sinnum bikarmeistari og tíu sinnum deildarmeistari. Þessi mikla sigurganga hófst aldamótaárið 2000 þegar Haukar urðu Íslandsmeistarar eftir sigur á Fram í úrslitaeinvígi. Einn af lykilmönnum Hauka á þeim tíma var Petr Baumruk, faðir Adams, en þeir feðgar hafa hjálpað Haukum að vinna ansi marga titla. „Það voru góð kaup hjá Þorgeiri Haraldssyni [formaður handknattleiksdeildar Hauka] að fá pabba og svo mig,“ sagði Adam og hló. Petr kom hingað til lands árið 1990 eftir að hafa notið mikillar velgengni með Dukla Prag í heimalandinu, Tékkóslóvakíu. Petr varð nokkrum sinnum landsmeistari með Dukla Prag og Evrópumeistari meistaraliða 1984. Þá lék hann fjölda landsleikja fyrir Tékkóslóvakíu og spilaði m.a. á tvennum Ólympíuleikum (1988 og 1992).vísir/valliEins og að hafa annan þjálfara Petr lék með Haukum til ársins 2001 og um áratug seinna tók sonurinn við keflinu. Petr er þó alltaf nálægur en hann starfar í íþróttahúsinu á Ásvöllum og fylgist vel með öllu sem þar fer fram. „Maður fær aldrei frið heima,“ sagði Adam í léttum dúr, aðspurður hvort pabbinn væri að segja honum til eða skamma hann. „Ef mann vantar ráð getur maður leitað til hans. En hann kann líka að róa sig niður og ef hann sér að ég vil ekki tala um handbolta talar hann ekki um handbolta. Þetta er eins og að hafa annan þjálfara heima.“ Adam segir margt líkt með þeim feðgum á vellinum enda spila þeir sömu stöðu, sem rétthent skytta. „Hann var kannski aðeins grimmari í vörninni. Ég á eftir að vaxa þar,“ sagði Adam. „En helsti munurinn er að hann var meira í gólfskotunum í sókninni en ég meira í uppstökkunum og að skjóta fyrir utan.“ Adam segist ekki hafa fundið fyrir aukinni pressu á sér vegna þess hver faðir hans er. „Auðvitað er einhver pressa á manni en ég hugsa ekki um það. Ég reyni bara að vera ég sjálfur,“ sagði Adam Haukur Baumruk.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Sjáðu fögnuð Hauka þegar þeir fréttu að þeir væru deildarmeistarar Haukarnir þurftu að bíða eftir úrslitum úr leik Vals og Víkings en skelltu svo We are the champions í tækið. 14. mars 2016 22:21 Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Grótta 36-28 | Haukar deildarmeistarar Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í handbolta með öruggum sigri á Gróttu 36-28 á heimavelli sínum í 24. umferð Olís deildar karla í kvöld. Haukar voru 19-10 yfir í hálfleik. 14. mars 2016 21:30 Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Ítalía 39-26 | Afar öruggur sigur gegn óvenjulegu liði Handbolti Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ Handbolti Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Handbolti Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Íslenski boltinn Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin Handbolti Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands á EM Handbolti Stjörnuleikmaður fékk borgaðar tugi milljóna fyrir að spila illa Körfubolti Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Handbolti Óli Stef greindi frá fjarveru sonarins yfir lambalæri hjá Þrótturum Handbolti „Á eftir bolta kemur barn“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einkunnir Strákanna okkar á móti Ítalíu: Her Napóleons gjörsigraður Tölfræðin á móti Ítalíu: Þrír í íslenska liðinu með yfir 9,56 af tíu í sóknareinkunn Slóvenía vann eftir algjöra markaveislu „Við vorum búnir að kortleggja þá“ „Viljum sanna við eigum heima meðal þeirra bestu“ Sjáðu gleðina hjá Íslendingum í Kristianstad Óli Stef greindi frá fjarveru sonarins yfir lambalæri hjá Þrótturum Pallborðið: Rýndu í möguleika Íslands á EM Höfum ekki tapað fyrsta leik á EM á sex síðustu Evrópumótum Uppgjörið: Ísland - Ítalía 39-26 | Afar öruggur sigur gegn óvenjulegu liði KA fær Dag aftur heim Þjálfari Ítalíu smeykur við Gísla og Ómar Svona er leiðin að verðlaunum: Ísland sleppur við allra bestu liðin „Geri mér vonir um að þetta verði mótið þar sem allt smellur“ Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Lofsamar starfið á Íslandi og segir það vanmetið: „Að mínu mati ótrúlegt“ „Þetta er ekki flókið“ Haukar sneru aftur á sigurbraut gegn Selfossi Alfreð lét sér einn hornamann nægja og stýrði Þjóðverjum til sigurs Spánverjar lögðu Serba og Frakkar völtuðu yfir Tékka Uppgjörið: ÍR - ÍBV 26-29| Eyjakonur tylltu sér á toppinn EM í dag: Sushi og sjónskekkja í Svíþjóð Viktor Gísli brattur: „Bara jákvætt að það sé pressa“ Spálíkan kippir okkur niður á jörðina fyrir EM Eini þýski þjálfarinn á EM þjálfar Ítalíu en hefur mikla trú á Alfreð Ýtt í menn ef þeir eru ekki 110 prósent Lærisveinn Alfreðs sakar mótherja kvöldsins um að spila „anti-handbolta“ „Búið að rífa úr honum stælana, egóið og hrokann“ Virtur handboltasérfræðingur spáir því að EM-bronsið fari til Íslands Stelpurnar okkar fögnuðu stórum sigrum Sjá meira
Sjáðu fögnuð Hauka þegar þeir fréttu að þeir væru deildarmeistarar Haukarnir þurftu að bíða eftir úrslitum úr leik Vals og Víkings en skelltu svo We are the champions í tækið. 14. mars 2016 22:21
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Grótta 36-28 | Haukar deildarmeistarar Haukar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn í handbolta með öruggum sigri á Gróttu 36-28 á heimavelli sínum í 24. umferð Olís deildar karla í kvöld. Haukar voru 19-10 yfir í hálfleik. 14. mars 2016 21:30