Súpan Hildur Sverrisdóttir skrifar 4. mars 2016 00:01 Ég var á súpufundi um stjórnarskrármálið sem ég hugsaði með mér að væri viðeigandi. Eftir hrun var kallað á breytingar sem áttu einhverra hluta vegna að felast í stjórnarskránni. Við tók farsi, kosning á milli 522 stjórnlagaþingsfulltrúa var meingölluð og ógilt af Hæstarétti. Þá var ákveðið að breyta þinginu bara í ráð. Starf þess minnti á eldhús þar sem 25 kokkar elda súpu og allir skutla hráefnum í pottinn. Útkoman var klárlega ofgnótt enda tillagan kúvending stjórnarskrárinnar í 114 greinum. Þjóðaratkvæði um tillögurnar fékk ekki meirihluta þjóðarinnar á kjörstað og vandræðagangur vinstristjórnarinnar á hennar síðustu metrum við að gera eitthvað úr uppskriftinni reyndist svo mikið bíó að það var við hæfi að gerð var um hann bíómynd. Þegar ég var lítil fékk ég hausverk af hvíta Wrigley’s tyggjóinu sem var vinsælt fríhafnargóss. Ég fæ svipaðan hausverk við tilhugsunina um réttaróvissuna og dómsmálin sem stjórnarskrártilraunaeldhúsið hefði boðið upp á. Samt efast ég ekki um einlægan vilja þeirra og trú sem héldu að alhliða uppskriftin myndi gera allt betra, þó ég sé hrædd um að sú uppskrift hefði reynst vera öfug naglasúpa. Þannig að þó að ég, eins og eflaust flestir, sé ekkert hoppandi kát með nýjar tillögur að stjórnarskrárbreytingum – enda eru þær unnar í þverpólitískri sátt sem er þess eðlis að enginn er 100% sáttur – þá fer minna fyrir hausverknum. Tillögurnar nú eru einfaldlega betur unnar. Enda sýnist mér að almennt séu umræður um nýja stjórnarskrá bæði minni og lágstemmdari en á súpuárunum. Kannski tók það bara þennan tíma fyrir fólk að fatta að bankahrunið var ekki stjórnarskránni að kenna. Bara alls ekki neitt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hildur Sverrisdóttir Mest lesið Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun
Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson Skoðun