Helena: Mikill karakter og sjálfstraust í liðinu allan leikinn Ingvi Þór Sæmundsson í Laugardalshöllinni skrifar 24. febrúar 2016 22:35 Helena í leiknum í kvöld. vísir/ernir
Helena Sverrisdóttir átti stórkostlegan leik þegar Ísland lagði Ungverjaland að velli, 87-77, í undankeppni EM 2017 í kvöld. Helena var í sérflokki á vellinum og skoraði 29 stig, tók 16 fráköst og gaf átta stoðsendingar. En var þetta hennar besti landsleikur á ferlinum? "Þetta var allavega besti sigurinn," sagði Helena og brosti. "Auðvitað er gaman að spila vel í svona leikjum og svona sigrum," bætti landsliðsfyrirliðinn við. Helena gaf tóninn strax í upphafi leiks og skoraði 13 af fyrstu 16 stigum íslenska liðsins sem leiddi allan leikinn. "Við höfum oft byrjað mjög vel en misst þetta niður. En núna héldum við áfram og skotin héldu áfram að detta. Það var mikill karakter og sjálfstraust í liðinu allan leikinn," sagði Helena sem var ánægð með varnarleik Íslands í kvöld. "Við vissum að við þyrftum að loka á (Tijönu) Krivacevic inni í teignum. Hún var alltaf að fara að skora sín 20 stig en við gerðum henni erfitt fyrir." Helena spilaði aðra rullu í kvöld en í síðustu landsleikjum þar sem hún hefur spilað sem leikstjórnandi og þurft að bera boltann upp völlinn. Í kvöld lék hún í stöðu kraftframherja og líkaði það vel. "Þetta var fínt. Það tekur á að drippla boltanum upp völlinn undir pressu þannig að það var fínt að geta skipt aðeins í fjarkann og fengið að pústa," sagði Helena að lokum.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Íslenski boltinn Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Sjá meira