Hryggsúlan í úrvalsliði fyrri umferðarinnar er úr Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júlí 2015 09:00 Valsmenn náðu í flest stig allra liða frá 2. til 11. umferð. Vísir/Vilhelm
Fjórir Valsmenn komast í ellefu manna úrvalslið Fréttablaðsins fyrir fyrri umferð Pepsi-deildarinnar en í gær sögðum við frá því að miðjumaður liðsins, Kristinn Freyr Sigurðsson, hefði verið útnefndur besti leikmaður fyrri umferðarinnar hjá Fréttablaðinu. Kristinn Freyr er langt frá því að vera eini Valsmaðurinn í úrvalsliðinu því það má segja að öll hryggsúla úrvalsliðsins sé úr Val, allt frá danska miðverðinum Thomas Guldborg Christensen til danska framherjans Patrick Pedersen en á milli þeirra eru miðjumennirnir Kristinn Freyr og vinnuþjarkurinn Haukur Páll Sigurðsson. Valsmenn eru ekki eina spútniklið sumarsins því framan af móti voru Fjölnismenn á hraðri leið í toppbaráttuna. Bergsveinn Ólafsson og Aron Sigurðarson komast báðir í liðið þrátt fyrir að Grafarvogspiltum hafi fatast flugið á síðustu vikum. Blikar hafa spilað frábæran bolta í sumar en þeir eiga aðeins einn leikmann í liðinu. Fjórir af sjö varamönnum úrvalsliðsins spila aftur á móti með Breiðabliksliðinu. Blikar eiga líka tvo bestu ungu leikmennina (Höskuldur Gunnlaugsson og Oliver Sigurjónsson) og besta ellismellinn í hinum fertuga markverði liðsins, Gunnleifi Gunnleifssyni. Topplið FH á bara einn leikmann í liðinu, sem er Atli Guðnason, og KR, sem er í öðru sæti, á „bara“ tvo leikmenn. Það er von á því að leikmenn hjá þessum svart-hvítu risum láti meira til sín taka í seinni umferðinni. Lukkan hefur ekki leikið við alla leikmenn deildarinnar og hér á síðunni má einnig sjá þá ellefu leikmenn sem fá þann vafasama heiður að vera hluti af lánlausa liðinu eða liði leikmanna Pepsi-deildarinnar sem hafa fengið lægstu meðaleinkunn hjá blaðamönnum Vísis og Fréttablaðsins til þessa í sumar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hamilton segir Ferrari þurfa nýjan ökumann því hann sé gagnslaus Formúla 1 Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu og Manchester United Sport Þessir þurfa að heilla Amorim Enski boltinn „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn Brynjólfur Andersen með tvö gegn Wrexham Fótbolti Ísland mátti þola stórt tap Körfubolti Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Enski boltinn Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Fleiri fréttir „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld KR missir sinn efnilegasta mann „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Sjá meira