„Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sindri Sverrisson skrifar 7. desember 2025 22:22 Samantha Smith skoraði meðal annars tvö mörk fyrir Breiðablik í bikarúrslitaleiknum í ágúst, í sigrinum á FH. vísir/Anton Samantha Smith, ein allra besta knattspyrnukona hér á landi síðustu ár, hefur nú kvatt landið en kveðst að eilífu verða þakklát fyrir tíma sinn hér.
Sammy, eins og hún er kölluð, kom til FHL í Lengjudeildina í fyrra og raðaði þar inn mörkum, alls 15 í 14 leikjum, og átti þannig risastóran þátt í því að Austfirðir eignuðust lið í efstu deild eftir langa bið. Hún fór svo til Breiðabliks í ágúst í fyrra og varð Íslandsmeistari með Blikum, og endurtók þann leik svo í sumar þegar hún varð einnig bikarmeistari. Nú er þessi 24 ára Bandaríkjakona búin að ákveða að reyna fyrir sér annars staðar. „Takk Breiðablik fyrir tvö ógleymanlegustu sumur lífs míns. Tveimur deildartitlum og einum Mjólkurbikar síðar er ég að eilífu þakklát fyrir tíma minn í grænu,“ skrifar Sammy á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Sammy Smith (@sammysmlth) „Breiðablik er sannarlega besti klúbbur landsins og ég get ekki þakkað Nik eða klúbbnum nóg fyrir að hafa tekið sénsinn á mér á síðasta tímabili og fengið mig til að hjálpa til við að koma með og halda skildinum í Kópavogi. Takk Ísland fyrir allar minningarnar og allt ógleymanlega fólkið sem er orðið hluti af fjölskyldu minni. Þessi staður er FULLUR af ást og ég er svo glöð að hafa getað kallað hann heimili mitt síðastliðin 2 ár. Að því sögðu er tíma mínum í íslenskum fótbolta lokið í bili. Stórar fréttir eru í vændum en ég mun aldrei gleyma öllu sem Ísland, Breiðablik og FHL hafa gefið mér,“ skrifar Sammy í lauslegri þýðingu, áður en hún kveður á íslensku: „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt, sjáumst!!“
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira