Stefnir á að hlaupa maraþon í Chicago Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. febrúar 2015 13:00 Til starfa á akureyri Sigþór er alinn upp á Húsavík og þekkir því Norðurlandið vel. fréttablaðið /stefán
Sigþór Jónsson var í síðustu viku ráðinn framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa hf. Hann var áður framkvæmdastjóri Straums sjóða hf. og þar áður gegndi hann störfum framkvæmdastjóra Landsbréfa hf. Hann hefur einnig verið forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá sjóðastýringarfyrirtækinu Stefni hf. og leiddi þar meðal annars uppbyggingu innlendra framtakssjóða félaganna. Íslensk verðbréf eru með höfuðstöðvar á Akureyri. Spurður hvort til standi að flytja norður segir Sigþór að hann sé að minnsta kosti kominn með annan fótinn þangað. „Ég er fæddur og uppalinn á Húsavík,“ segir Sigþór og það geti því vel komið til greina að búa fyrir norðan. „Íslensk verðbréf eru afar spennandi félag. Það rekur sögu sína allt til ársins 1987 og hefur á þessum tæplega þrjátíu árum náð sterkri stöðu í eignastýringu á íslenskum fjármálamarkaði,“ segir Sigþór, spurður um það hvað hafi heillað við nýja vinnu. Félagið sé farsællega rekið, annálað fyrir fagleg vinnubrögð og gott starfsfólk. „Það er ögrandi verkefni að byggja ofan á þennan trausta grunn. Á undanförnum árum hefur ríkt ákveðin óvissa um eignarhaldið á félaginu sem e.t.v. hefur haft einhver hamlandi áhrif. Þeirri óvissu hefur nú að hluta til verið eytt og um leið getur skapast þægilegra andrúmsloft til að nýta þau sóknartækifæri sem gefast. Íslensk verðbréf eru eitt sterkasta vörumerkið á eignastýringarmarkaðnum og við munum líta til ýmissa tækifæra sem sú staða skapar okkur,“ segir Sigþór. Í dag fer Straumur fjárfestingabanki hf. með 58 prósenta hlut í Íslenskum verðbréfum hf., í gegnum Íslenska eignastýringu ehf., og svo eiga lífeyrissjóðir um 40 prósent. Fyrirtækið var með 112 milljarða í eignastýringu í lok síðasta árs. Helstu áhugamál Sigþórs eru ferðalög og hlaup og svo er hann að byrja hjólreiðar líka. „Mig dreymir svo um að taka þátt í Ironman fyrir fertugt. Það er markmiðið um þessar mundir en ég setti mér reyndar sama markmið á sínum tíma fyrir 35 ára afmælið – án þess að drífa mig af stað – hvað þá alla leið,“ segir Sigþór, sem verður fertugur á næsta ári. Svo reynir Sigþór að eiga sem mestan tíma með fjölskyldunni. Hann er trúlofaður Guðrúnu Lilju Tryggvadóttir sérfræðingi á eignastýringasviði Arion banka og eiga þau tvö lítil börn. Sigþór á líka eina dóttur búsetta í Noregi. Sigþór stundaði flestar íþróttir á sínum yngri árum á Húsavík, spilaði fótbolta með Völsungi og nokkra leiki með meistaraflokknum. Hann segist þó ekki hafa verið landsliðsefni. Hann hefur hlaupið nokkur maraþon og er skráður í maraþon í Chicago í maí með eldri systur og mági sem eru búsett þar og stefnir á að taka þátt í WOW Cyclothon. „Ég er ansi gjarn á að skrá mig og aðra í alls kyns vitleysu, en það verður stundum minna um efndir, þó eitthvað,“ segir Sigþór.
Wow Cyclothon Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira