Baldur orðinn sá elsti Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. desember 2015 21:26
Snæfellingurinn Baldur Þorleifsson varð í kvöld elsti stigaskorari efstu deildar karla í körfubolta frá upphafi. Baldur skoraði tvö stig af vítalínunni er Stjarnan vann stórsigur á Snæfelli í Ásgarði, 109-73.Sjá einnig: Búið í fyrsta leikhluta Baldur er í dag 49 ára, þriggja mánaða og sex daga en Sauðkrækingurinn Kári Marísson var 49 ára, tveggja mánaða og 22 daga þegar hann skoraði sín síðustu stig í efstu deild árið 2001. Baldur fékk mikið hrós frá Inga Þór Steinþórssyni, þjálfara Snæfells, eftir leikinn í kvöld. „Hann er ekki í versta formi í deildinni og ekki heldur í mínu liði. Hann er flottur og gerir það að verkum að við getum stillt upp í fimm á fimm á æfingum.“ „Hann mætir í vinnu alla daga og er að smíða frá sjö á morgnana til sex á kvöldin, áður en hann kemur á æfingu til okkar og tekur vel á því.“ „Það geta margir litið upp til hans - þeirra á meðal ég. Það er ekki slæmt að vera í leikformi 49 ára gamall.“ Gunnlaugur Smárason, aðstoðarþjálfari Inga Þórs, spilaði einnig með í kvöld en það er í fyrsta sinn í langan tíma sem hann reimar á sig skóna. „Hann kann leikinn vel. Ég er samt líklega eini maðurinn sem hefði ekki getað dekkað hann í kvöld. Líkamlegir burðir hans eru ekki klárir í efstu deild. Við skulum bara hafa það alveg á hreinu,“ segir hann og brosir.
Dominos-deild karla Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Norsk handboltastjarna með krabbamein Handbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Kraftaverkakona sem þekkir Ísland út og inn Fótbolti Fleiri fréttir Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Íslensku stelpurnar unnu silfrið á Norðurlandamótinu Fór frá bróður og Keflavík: „Þarf ekkert litla bróður sinn með sér í liði“ Buss fjölskyldan selur Los Angeles Lakers fyrir metupphæð Hæsta kona heims lék sinn fyrsta landsleik Rúnar Birgir á EuroBasket Dolezaj til liðs við nýliðana Sjá meira