Framherjar Blika í stuði í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2015 07:30 Fanndís er markahæst í Pepsi-deildinni með sjö mörk. vísir/stefán
Kvennalið Breiðabliks er ekki aðeins á toppi Pepsi-deildar kvenna þegar þriðjungur deildarkeppninnar er að baki því liðið á einnig tvo markahæstu leikmennina eftir sex umferðir af átján. Breiðabliksliðið hefur skorað 22 mörk í fyrstu sex leikjunum eða 3,7 mörk í leik og hefur náð í sextán af átján stigum í boði. Fanndís Friðriksdóttir er markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk og Telma Hjaltalín Þrastardóttir hefur skorað einu marki minna. Þrátt fyrir að vera í mikilli baráttu um gullskóinn þá hafa þær stöllur verið duglegar að leggja upp mark hvor fyrir aðra í fyrstu sex umferðunum. Fanndís hefur skorað í öllum sex leikjunum nema einum og í honum lagði hún upp sigurmarkið fyrir Telmu. Það var svo sannarlega ekki fyrsta markið sem Fanndís leggur upp fyrir Telmu í sumar. Telma þakkaði reyndar fyrir sig í næsta leik og átti stoðsendinguna á Fanndísi í báðum mörkum hennar í 6-0 stórsigri á Val á útivelli. Telma skoraði einnig í sigrinum á Val og hefur hún nú skorað í þremur leikjum Breiðabliks í röð og öllum leikjum nema einum. Þetta þýðir að annaðhvort Fanndís og Telma hafa skorað í öllum sex leikjum Blika í sumar og í fjórum leikjanna hafa þær báðar verið á skotskónum.Markahæstu leikmenn Pepsi-deildar kvenna eftir sex umferðir: Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki 7 Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Breiðabliki 6 Kristín Erna Sigurlásdóttir, ÍBV 5 Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfossi 5 Elín Metta Jensen, Val 5 Vesna Elísa Smiljkovic, Val 5 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 5 Sandra María Jessen, Þór/KA 5 Shaneka Jodian Gordon ÍBV 4 Sarah M. Miller, Þór/KA 4 Klara Lindberg, Þór/KA 4
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Guðmundur svekktur eftir sniðgöngu: „Finnst þetta dónalegt“ Handbolti Fengu símtal frá brjáluðum Gumma Gumm um niðdimma nótt Handbolti Í bann fyrir „gróft brot“ á kynfærum tveggja mótherja Enski boltinn Hafþór hrósar læknum „Steraleikanna“ og segist treysta þeim alveg Sport Heimasíða EM í handbolta spáir Íslandi á verðlaunapallinn Handbolti Þrír af Strákunum okkar í upptalningu á þeim bestu fyrir EM Handbolti Uppgjöfin fyrir Mbappé hafi markað endalok Alonso Fótbolti City fer með góða forystu inn í seinni leikinn gegn Newcastle Fótbolti Extra-leikarnir: „Fannst þessi einkunnagjöf lykta af smá Kópavogsmeðvirkni“ Körfubolti Samningur í höfn hjá Carrick og Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Alfreð hættur hjá Breiðabliki Skipulagsbreytingar á skrifstofu KSÍ Nýliðarnir fá bandarískan markvörð Júlíus sagður á förum frá KR til Noregs Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Valur fær Dana til að fullmóta teymi sín Ingimar Stöle semur við Val Adda verður hægri hönd Ian Jeffs í sumar „Mér var bara tjáð að þeir ætluðu að leita eitthvað annað“ Enn kvarnast úr liði Blika Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Sjá meira