Menningarlegur munaður sigga dögg skrifar 13. maí 2015 11:00 Hafnarhúsið í Tryggvagötu Vísir/Skjámynd
Nýlega náðist par í eldheitu keleríi á öryggismyndavél erótísks safns í Las Vegas. Það að stunda kynlíf á almannafæri með þeim möguleika á að einhver komi að þykir mörgum spennandi en tæknilega er það refsivert samkvæmt hegningarlögum því það er eiginlega bannað að vera nakin á almannafæri og þú ert að bera þig eða stunda kynlíf þá getur þú sært blygðunarkenndn þess sem kemur að. Það er hins vegar munur á þeim sem bera sig og eru með sýniþörf því þá bera þeir sig viljandi fyrir öðrum einstaklingi og örvunun felst í því. Þegar fólk stundar kynlíf á almannafæri felst spennan oft frekar í þeim möguleika á að einhver gæti séð en ekki að einhver sé að því. Söfn er einn staður sem hefur verið vinsæll áningarstaður para fyrir kelerí enda víða góð skot og þar sem allt kynlíf byrjar í heilanum þá er ekki ósennilegt að falleg listaverk séu mikil kveikja fyrir kynlöngun listaunnenda. Vefsíðan Vulture tók saman sögur fólks sem hefur stundað kynlíf á söfnum víða um heim. Fólk hefur kela í söfnum líkt og Louvre í París, Hermitage í St. Pétursborg í Rússlandi, MoMA í New York og gyðingasafninu í Berlín. Eflaust hafa einhverjir gamnað sér á söfnum á Íslandi þó enga sögu sé að finna í þessu samansafni en nú er spurning hvor einhver lesendi lumi á góðri safnakeleríssögu?
Heilsa Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning