Óvænt útspil hjá Haukum | Freyr Brynjarsson á skýrslu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2015 19:21 Freyr Brynjarsson. Vísir/Daníel
Haukar eru án hornamannsins Einars Péturs Péturssonar í öðrum leiknum gegn Aftureldingu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla en Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, hefur kallað á reynsluboltann Frey Brynjarsson. Einar Pétur fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrsta leiks liðanna í N1-höllinni í Mosfellsbæ í fyrrakvöld fyrir að brjóta á Erni Inga Bjarkasyni. Brot Einars flokkast sem gróf óíþróttamannsleg framkoma og því þarf hann að fylgjast með félögum sínum úr stúkunni þegar liðin mætast öðru sinni á Ásvöllum. Einar Pétur skoraði fimm mörk úr sjö skotum í fyrsta leiknum og var því svo sannarlega betri en enginn í liði Hauka. Freyr Brynjarsson er margfaldur Íslandsmeistari með Haukaliðinu en hann hefur ekkert spilað handbolta undanfarin tvö tímabil. „Freyr kemur inn í þetta verkefni í dag. Hann er mikill Haukamaður og mikill keppnismaður. Villi verður númer eitt en það verður fínt að hafa Frey og hann mun hjálpa mikið í þessum leik," sagði Patrekur Jóhannesson í viðtali fyrir leikinn á Rúv. Vilhjálmur Geir Hauksson mun því byrja leikinn og því óvíst hversu mikið Freyr spilar. Það er hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Einar Pétur í banni á morgun Haukar verða án hornamannsins Einars Péturs Péturssonar í öðrum leiknum gegn Aftureldingu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. 7. maí 2015 13:31 Umfjöllun, myndir og viðtöl: Haukar - Afturelding 21-16 | Haukar í 2-0 Haukar geta orðið Íslandsmeistarar á mánudag þegar þeir leika gegn Aftureldingu í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar unnu sanngjarnan sigur í kvöld á Ásvöllum og eru komnir í 2-0 í einvíginu. Liðin leika í Mosfellsbæ á mánudag. 8. maí 2015 21:15 Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira
Einar Pétur í banni á morgun Haukar verða án hornamannsins Einars Péturs Péturssonar í öðrum leiknum gegn Aftureldingu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. 7. maí 2015 13:31
Umfjöllun, myndir og viðtöl: Haukar - Afturelding 21-16 | Haukar í 2-0 Haukar geta orðið Íslandsmeistarar á mánudag þegar þeir leika gegn Aftureldingu í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Haukar unnu sanngjarnan sigur í kvöld á Ásvöllum og eru komnir í 2-0 í einvíginu. Liðin leika í Mosfellsbæ á mánudag. 8. maí 2015 21:15