Spá Fréttablaðsins og Vísis: Víkingur hafnar í 7. sæti 25. apríl 2015 09:00 Pape Mamadou Faye fagnar marki gegn Þór með Igor Taskovic og Dofra Snorrasyni. vísir/pjetur
Fréttablaðið og Vísir telur niður í Pepsi-deild karla í knattspyrnu með árlegri spá sinni. Íslandsmótið hefst 3. maí og þar á Stjarnan titil að verja eftir að verða meistari í fyrsta skipti í sögu félagsins. Fréttablaðið og Vísir spáir Víkingi sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar í sumar, en það er þremur sætum lægra en liðið endaði á síðustu leiktíð. Víkingar komu liða mest á óvart í fyrra og nældu sér í Evrópusæti í fyrsta sinn í 23 ár. Liðið hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari, síðast árið 1991. Ólafur Þórðarson þjálfar Víking fjórða árið í röð, en nú hefur Serbinn Milos Milojevic fengið stöðuhækkun og er orðinn samþjálfari Ólafs í stað aðstoðarþjálfari liðsins. Samstarf þeirra hefur skilað Víkingum Pepsi-deildarsæti á ný og Evrópukeppni. LÍKLEGT BYRJUNARLIÐgraf/garðarEINKUNNASPJALDIÐ Vörnin: 4 stjörnur (af 5) Sóknin: 3 stjörnur Þjálfarinn: 3 stjörnur Breiddin: 2 stjarna Liðsstyrkurinn: 2 stjarna Hefðin: 2 stjörnurIgor Taskovic, Alan Lowing og Rolf Toft.vísir/pjeturÞRÍR SEM VÍKINGUR TREYSTIR ÁIgor Taskovic: Serbneski miðjumaðurinn tók Pepsi-deildina síðasta sumar með trukki og dýfu og var einn besti leikmaður deildarinnar. Hann er algjör lykilmaður í Víkingsliðinu; fyrirliði þess og leiðtogi. Hann les leikinn ótrúlega vel, brýtur niður sóknir andstæðinganna og ber upp boltann fyrir liðið. Igor er mikilvægasti leikmaður Víkingsliðsins.Alan Lowing: Víkingar gerðu vel með að semja aftur við Lowing áður en síðasta tímabili lauk svo þeir þyrftu ekki að fara í samkeppni um undirskrift hans. Frábær miðvörður sem átti stórgott sumar í fyrra. Skynsamur miðvörður sem er góður á boltanum og er jafnan réttur maður á réttum stað.Rolf Toft: Daninn kom sterkur inn í meistaralið Stjörnunnar í fyrra og skoraði sex mörk í ellefu leikjum. Verður í öðru hlutverki hjá Víkingum þar sem hann mun spila meira á kantinum og sækja boltann aftur. Þarf engu að síður að vera maður sem skilar mörkum og á það treysta Víkingar í sumar.Stefán Þór Pálsson hefur spilað vel á vormótunum.vísir/pjeturNýstirnið: Stefán Þór Pálsson Blikinn hefur verið lánaður til Grindavíkur og KA í 1. deildina undanfarin ár, en Milos og Ólafur hafa mikla trú á honum og nú fær hann tækifæri til að spila sem fastamaður í efstu deild. Marksækinn miðjumaður sem hefur skorað reglulega á undirbúningstímabilinu. Víkingar mega ekki búast við nýjum Aroni Elís, en Stefán getur klárlega slegið í gegn í sumar haldi hann áfram að spila eins og í vetur.Viktor Bjarki Arnarsson er kominn heim í þriðja sinn.vísir/ernirMARKAÐURINNKomnir: Andri Rúnar Bjarnason frá BÍ/Bolungarvík Atli Fannar Jónsson frá ÍBV Denis Cardaklija frá Fram Finnur Ólafsson frá Fylki Haukur Baldvinsson frá Fram Hallgrímur Mar Steingrímsson frá KA Milos Zivkovic frá Serbíu Rolf Toft frá Stjörnunni Stefán Þór Pálsson frá Breiðabliki Thomas Nielsen frá Danmörku Viktor Bjarki Arnarsson frá FramFarnir: Aron Elís Þrándarson í Álasund Kristinn Jóhannes Magnússon í KR Ingvar Þór Kale í Val Iliyan Garov Ómar Friðriksson í Fram á láni Óttar Steinn Magnússon Ventseslav Ivanov Viktor Jónsson í Þrótt (Á láni) Það var nóg að gera á markaðnum hjá Víkingum sem bættu við sig tólf leikmönnum eftir að missa tíu. Þeir voru gagnrýndir fyrir að vera með of litla breidd í fyrra og hafa unnið í þeim málum. Stóri fengurinn var Rolf Toft, en síðast þegar Víkingur stal framherja af meistaraliði var það Guðmundur Steinsson 1990. Hann varð markakóngur og Víkingur meistari næsta sumar. Við því býst þó enginn að þessu sinni. Hvernig lífið hjá Víkingi verður án Arons Elís á eftir að koma í ljós. Þegar hann var upp á sitt besta síðasta sumar rakaði Víkingur inn 90% af stigunum sem kom liðinu í Evrópukeppni. Hann getur ekki lengur borið sóknarleikinn uppi þannig aðrir verða að leggja lóð sín á vogarskálarnar. Víkingar hentu líka frá sér markverðinum Ingvari Kale sem átti mjög gott sumar framan af og er uppalinn Víkingur. Í staðinn var fenginn Daninn Thomas Nielsen sem hefur engað heillað og er svo komið að Denis Cardaclija mun líklega byrja fyrsta leik. Að láta Ingvar fara gæti reynst Víkingum dýrkeypt. Hallgrímur Mar Steingrímsson er spennandi leikmaður sem byrjar mótið þó meiddur og þá er Viktor Bjarki Arnarsson kominn heim í þriðja skiptið. Vonandi fyrir Víkinga á hann einhver ár eftir til að gefa uppeldisfélaginu. Hvað breiddina varðar gerðu Víkingar ágæta hluti á félagaskiptamarkaðnum, en það var vont að missa Aron Elís og þá gætu markvarðarmálin ollið þeim vandræðum.HVAÐ SEGIR SÉRFRÆÐINGURINN?Hjörtur Hjartarson kemur nýr inn í Pepsi-mörkin í ár, en hann hefur áður stýrt íslensku mörkunum á RÚV og verið sérfræðingur í Messunni á Stöð 2 Sport og Meistaramörkunum. Hjörtur spilaði með Skallagrími, Völsungi, ÍA, Þrótti, Selfossi og Víkingi á 19 ára löngum ferli. Hann varð markakóngur í úrvalsdeildinni árið 2001 þegar hann fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með ÍA. Ólafur Þórðarson og Milos Milojevic stýra Víkingsliðinu saman.vísir/daníelSTYRKLEIKAR LIÐSINS: Víkingsliðið er vel skipulagt og spilar góðan fótbolta. Það heldur bolta vel og er erfitt að brjóta niður. Varnarlínan lítur vel út með þá Dofra og Ívar í bakvörðunum og Serbann og Skotann fyrir hjarta varnarinnar. Þá er liðið með stjörnuframherja í Rolf Toft sem ætti að geta skorað einhver mörk. Þjálfaratvíeykið er öflugt en Milos og Ólafur ná vel saman og miklu út úr liðinu.VEIKLEIKAR LIÐSINS: Víkingur mætir til leiks með mikið af nýjum mönnum og án eins allra besta leikmanns Íslandsmótsins í fyrra. Markvarðamálin eru í uppnámi, en það er eitthvað sem Fossvogsliðið gat treyst á undanfarin tvö ár. Það er nóg af sóknarmönnum í liðinu en verði Toft ekki sá framherji sem liðið vonast til er óvíst hver stígur upp og skorar mörkin. Pape hefur átt við meiðsli að stríða í langan tíma, en verði hann heill kemur hann til greina.Hver á að fylla í skarð Arons Elís?vísir/pjeturBINNI BJARTSÝNI SEGIR: Það missa öll góð íslensk lið sína bestu menn. Það er ekkert nýtt. Þó margir leikmenn séu komnir var hópurinn klár þokkalega snemma og hefur liðið getað spilað á sínu sterkasta í margar vikur. Það hjálpar og svo eru Óli og Milos svo flottir saman. Toft mun raða inn mörkum og svo er mikið af spennandi strákum í liðinu eins og Stebbi Páls og Aukaspyrnu-Ívar Örn Jónsson. Við verðum áfram í Evrópubaráttunni.SIGGI SVARTSÝNI SEGIR: Þetta er ekki sama liðið og náði í Evrópusæti í fyrra. Lið sem fá tólf leikmenn og missa tíu gera ekkert af viti eins og hefur sannast enda alltof mikil uppbygging í gangi. Víkingur ætlaði sér stærri hluti og reyndi við stærri bita á markaðnum, en það tókst ekki. Við þurfum bara að sætta okkur við slakara annað ár og vonast til að halda áfram að festa okkar sæti í deildinni.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Spá Fréttablaðsins og Vísis: ÍA hafnar í 10. sæti Skagamenn, sem eru nýliðar í Pepsi-deildinni í ár, halda sæti sínu ef marka má spána. 22. apríl 2015 09:00 Spá Fréttablaðsins og Vísis: ÍBV hafnar í 11. sæti Eyjamenn kveðja Pepsi-deildina í fótbolta í haust rætist spá Fréttablaðsins og Vísis. 21. apríl 2015 09:00 Spá Fréttablaðsins og Vísis: Leiknir hafnar í 12. sæti Leiknismenn spila í Pepsi-deild karla í fyrsta skipti í sumar en dvöl þeirra verður stutt ef spáin rætist 20. apríl 2015 09:00 Spá Fréttablaðsins og Vísis: Keflavík hafnar í 8. sæti Keflavík fékk tvo týnda syni heim fyrir tímabilið en það endar í sömu stöðu og í fyrra samkvæmt spánni. 24. apríl 2015 09:00 Spá Fréttablaðsins og Vísis: Fjölnir hafnar í 9. sæti Fjölnismenn úr Grafarvogi lenda í sama sæti í Pepsi-deildinni í ár og í fyrra samvæmt spánni. 23. apríl 2015 09:00 Mest lesið María hjálpaði Arnari mikið: „Þá næ ég kannski aðeins að toga hann til baka“ Fótbolti Vilja henda Rüdiger úr landsliðinu eftir æðiskastið Fótbolti Sviptir hulunni af dularfullu dollunni Fótbolti Vilja úrslitaleik snemma vegna Eurovision Enski boltinn Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH Íslenski boltinn Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Brómansinn í hæstu hæðum: Lét fólkið syngja til heiðurs Klopp Enski boltinn Lið Hákonar hefur grætt mest á leikmannasölum í allri Evrópu Fótbolti Lakers sprungu og eiga bara eina líflínu Körfubolti Fá loks að halda sigrinum sem þrjú lið mótmæltu Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin: Endurkoma Stjörnunnar og mörkin hjá Val og FH Sjáðu markaveislu KR og rothögg KA gegn FH „Kom bara í hörkustandi inn í þennan leik“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 3-0| Valur kláraði dæmið í síðari hálfleik Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 1-2 | Ótrúleg endurkoma Garðbæinga Uppgjörið: KR - ÍA 5-0 | Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við „Ég á nokkuð mörg mörk miðað við hafsent“ Uppgjörið: FH - FHL | Miðvörðurinn Arna skoraði tvö og Maya gerði út af við leikinn Uppgjörið: Vestri-Breiðablik 0-1 | Höskuldur hetja Blika annan leikinn í röð Uppgjörið: KA - FH 3-2 | Fyrsti sigur KA en FH-ingar enn á botninum „Hún er klárlega skemmtikraftur“ Duke framherjinn kominn heim til Íslands og framlengdi við FH „Stálum öllu steini léttara frá helstu stöðunum í London“ Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Gunnar Jarl reif flautuna af hillunni Frederik Schram aftur til Vals: „Enginn svekktari en Ömmi sjálfur“ Sjáðu vélina sem „saumar saman“ Laugardalsvöllinn Rikki G mjög forvitinn um dularfullu dolluna hjá Mosfellingum „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Mörkin úr Bestu deildinni: Vítið sem felldi Víkinga og markaveisla Eyjamanna „Beindu þeim inn á miðju og átu þær þar“ „Menn voru að spila af gleði og þá gerast góðir hlutir“ Ósáttur Ólafur á förum Kostulegt viðtal bræðranna eftir sigurinn Uppgjörið: Afturelding - Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Mosfellinga kominn í hús Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Sjá meira
Spá Fréttablaðsins og Vísis: ÍA hafnar í 10. sæti Skagamenn, sem eru nýliðar í Pepsi-deildinni í ár, halda sæti sínu ef marka má spána. 22. apríl 2015 09:00
Spá Fréttablaðsins og Vísis: ÍBV hafnar í 11. sæti Eyjamenn kveðja Pepsi-deildina í fótbolta í haust rætist spá Fréttablaðsins og Vísis. 21. apríl 2015 09:00
Spá Fréttablaðsins og Vísis: Leiknir hafnar í 12. sæti Leiknismenn spila í Pepsi-deild karla í fyrsta skipti í sumar en dvöl þeirra verður stutt ef spáin rætist 20. apríl 2015 09:00
Spá Fréttablaðsins og Vísis: Keflavík hafnar í 8. sæti Keflavík fékk tvo týnda syni heim fyrir tímabilið en það endar í sömu stöðu og í fyrra samkvæmt spánni. 24. apríl 2015 09:00
Spá Fréttablaðsins og Vísis: Fjölnir hafnar í 9. sæti Fjölnismenn úr Grafarvogi lenda í sama sæti í Pepsi-deildinni í ár og í fyrra samvæmt spánni. 23. apríl 2015 09:00