Sænsk körfuboltakona valin önnur í nýliðavali WNBA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. apríl 2015 09:00 Amanda Zahui spilar með Tulsa Shock. Vísir/AP
Amanda Zahui var valin önnur í nýliðavali WNBA-deildarinnar í gær en þessi 21 ára sænski miðherji var búinn með tvö ár í Minnesota-skólanum en ákvað að gefa kost á sér í deild þeirra bestu. Amanda Zahui hefur spilað upp öll yngri landsliðin í Svíþjóð en hún fær nú tækifæri til að spila með WNBA-liðinu Tulsa Shock. Amanda Zahui er fædd árið 1993 en hún er 195 sentímetrar á hæð. Hún var með 16,9 stig og 12,2 fráköst að meðaltali á háskólaferlinum. Sænski miðherjinn átti mjög gott tímabil en það vakti athygli þegar hún sagði frá því að hún hafi hætt að borða uppáhalds sænska súkkulaðið sitt á nýloknu tímabili til að geta komist í betra form. Amanda Zahui og Jewell Loyd, sem var valin fyrst af Seattle Storm, ákváðu báðar að hætta snemma í skóla en það hefur ekki verið eins algengt hjá konunum og körlunum. „Ég og Jewell erum einstakir leikmenn. Allar sem vilja hætta í skóla verða að vera vissar og passa upp á það að þær verði ánægðar. Þetta er yndisleg tilfinning," sagði Amanda Zahui við ESPN. Amanda Zahui hefur dregið sig út úr EM-hópi Svía vegna þess að WNBA-deildin er spiluð á sumrin en sænska körfuboltasambandið lifir enn í voninni um að hún geti spilað með landsliðinu á EM í Ungverjalandi og Rúmeníu í júní.
NBA Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Sádi-Arabía - Úrúgvæ | Úr sandinum á stóra sviðið Fótbolti Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira