Framarar unnu óvæntan sigur á toppliði Vals á Hlíðarenda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2015 21:37 Vísir/Andri Marinó
Framarar unnu mjög óvæntan en jafnframt mjög mikilvægan útisigur á toppliði Vals í 23. umferð Ólís-deildar karla í handbolta í kvöld. Valsmenn voru búnir að vinna sex deildarleiki í röð og höfðu ekki tapað á nýju ári í deildinni. Framarar enduðu jafnframt tíu leikja sigurgöngu Valsmanna á Hlíðarenda. Valsliðið heldur samt þriggja stiga forystu á toppnum þar sem Afturelding, liðið í öðru sætinu, tapaði fyrir FH á sama tíma. Valur var 20-19 yfir um miðjan seinni hálfleik þegar Guðlaugur Arnarsson, þjálfari liðsins, tók leikhlé. Framliðið skoraði næstu þrjú mörk og tók frumkvæðið sem liðið hélt síðan út leikinn. Sigurður Örn Þorsteinsson skoraði átta mörk fyrir Fram í kvöld og Kristófer Fannar Guðmundsson varði vel í markinu. Framarar eru að berjast við Stjörnuna um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina og náði Safamýrarpiltar þriggja stiga forskoti á Garðabæjarliðið með þessum sigri. Stjarnan á reyndar tvo leiki inni á Fram og annar þeirra eru á móti ÍR annað kvöld.Valur - Fram 25-28 (14-14)Mörk Vals: Sveinn Aron Sveinsson 9, Guðmundur Hólmar Helgason 5, Atli Már Báruson 5, Geir Guðmundsson 4, Alexander Örn Júlíusson 1, Kári Kristján Kristjánsson 1.Mörk Fram: Sigurður Örn Þorsteinsson 8, Stefán Baldvin Stefánsson 5, Garðar B. Sigurjónsson 4, Ólafur Ægir Ólafsson 4, Ólafur Jóhann Magnússon 3, Kristinn Björgúlfsson 2, Elías Bóasson 2.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira